Friðrik áfram forstjóri Landsvirkjunar 20. október 2008 16:11
Friðrik Sophusson verður áfram forstjóri Landsvirkjunar og jafnvel til tveggja ára. Þetta kemur fram í tilkynningu frá fyrirtækinu. Þar segir að í ljósi gjörbreyttra aðstæðna hafi stjórn fyrirtækisins farið þess á leit við Friðrik að hann héldi áfram störfum sem forstjóri og var sú niðurstaða samþykkt samhljóða af stjórn Landsvirkjunar. Í sérstakri bókun um ákvörðunina er vísað til efnahagsástandsins í landinu nú um stundir: „Landsvirkjun gegnir afar þýðingarmiklu hlutverki í uppbyggingu og rekstri framleiðslustarfseminnar í landinu og vegur rekstur fyrirtækisins þungt í fjármálum þjóðarinnar. Í ljósi aðstæðna, sem nú eru uppi í efnahagsmálum og þjóðmálum, telur stjórn Landsvirkjunar brýnt að tryggja festu og samfellu í stjórn fyrirtækisins. Við þessar aðstæður hefur orðið að samkomulagi milli stjórnar og núverandi forstjóra að framlengja gildandi ráðningarsamning um allt að tvö ár í samræmi við ákvæði 8. gr. samningsins." Halda þarf traustum samskiptum við viðskiptavini og lánardrottna Friðrik hefur verið forstjóri Landsvirkjunar frá árinu 1999 en hugðist hætta í lok þessa árs. Því var starfið auglýst til umsóknar og bárust alls 55 umsóknir um starfið og var fjöldi hæfra einstaklinga í hópi umsækjenda að sögn Landsvirkjunar. „Ráðningarferlið var í eðlilegum farvegi og höfðu nokkrir umsækjenda verið kallaðir í viðtal, þegar aðstæður í þjóðfélaginu breyttust á svipstundu á þann veg, að augljóst var að meginviðfangsefni stjórnar og forstjóra næstu misseri yrði að tryggja festu og stöðugleika í rekstri sem og trausta eftirfylgni við undirbúning fyrirhugaðra virkjunar-framkvæmda," segir í tilkynningunni. Halda þurfi traustum samskiptum við helstu viðskiptavini og lánardrottna fyrirtækisins. „Þar skipta persónuleg tengsl og góð viðskipta-sambönd meginmáli. Að vel athuguðu máli þótti stjórn Landsvirkjunar því sérstök efni standa til þess að fara fram á það við núverandi forstjóra að hann gæfi kost á framlengingu gildandi ráðningarsamnings. Á þessum tíma er mikilvægt að nýta áfram reynslu og þekkingu núverandi forstjóra og telur stjórn Landsvirkjunar það best þjóna hagsmunum fyrirtækisins við úrlausn þeirra verkefna, sem nú eru framundan," segir einnig í tilkynningunni.
Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent Sex svín drápust eftir annað innbrot Innlent „Þetta er smjörklípa“ Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Innlent Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Innlent Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Fleiri fréttir Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Lægð nálgast og hviður geta orðið bílum skeinuhættar Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Sjá meira