Rannsókn á hugsanlegum brotum við fall bankanna þegar hafin 23. október 2008 15:45
Ríkissaksóknari hefur þegar hafið rannsókn á því hvort refsivert athæfi hafi átt sér stað í tengslum við fall íslensku bankanna. Það var Björn Bjarnason dómsmálaráðherra sem fól honum það og á fundi með allsherjarnefnd Alþingis í dag greindi ríkissaksóknari frá því í hverju vinnan fælist og hvernig hann sæi fyrir sér umgjörð og innihaldð athugunarinnar. Að sögn Birgis Ármannssonar, formanns allsherjarnefndar, er um forathugun að ræða á því hvort tilefni sé til að ráðast í opinbera rannsókn á tilteknum þáttum tengdum falli bankanna en sú rannsókn yrði þá hugsanlega í höndum lögeglu eða skattrannsóknarstjóra.„Málið er hins vegar á frumstigi og því er ekki hægt að segja neitt um þessi atriði nú en það er ljóst að það er allt undir," segir Birgir. Hann segir að fram hafi komið á fundinum með ríkissaksóknara að til þess að hefja opinbera rannsókna á tilteknum þáttum málsins þurfi að vera rökstuddur grunur um tiltekin brot, það sé viðfangsefni undirbúningsvinnu saksóknara að kanna það. Þessi forathugun sé gerð í samstarfi við Ríkisendurskoðun, Fjármálaeftirlitið, Skattrannsóknarstjóra og hugsanlega fleiri aðila. „Ríkissaksskóknari hefur almenna heimild til þess að fylgjast með því hvort um lögbrot sé að ræða og þess vegna er eðlilegt að hann hafi forgöngu um málið," segir Birgir enn fremur.Ekki möguleiki á frystingu eigna miðað við núgildandi lögÞingflokkur Vinstri - grænna sendi frá sér yfirlýsingu í dag þar sem lagt var til að kannaðar yrðu lagalegar forsendur þess að hægt verði að kyrrsetja tímabundið allar eignir innlendra fjármálafyrirtækja sem komist hafa í þrot, eigenda þeirra og tengdra aðila hér á landi og setja bann við hvers kyns ráðstöfun, sölu, veðsetningu.Birgir segir að miðað við núgildandi lög sjái hann ekki möguleika á kyrrsetingu eigna eða lögbanni á tiltekna löggerninga. Þá telji hann erfitt að semja lög þar um „öðruvísi en að setja gerræðisleg lagaákvæði eins og Gordon Brown er að nota í Bretlandi," segir Birgir og vísar þar til ákvörðunar breskra stjórnvalda að setja Landsbankann á hryðjuverkalista.Birgir telur að mestu máli skipti að rannsakað sé hvort einhverjir hafi farið á svig við lög í tengslum við hrun bankanna og að það sé leitt í ljós eftir eðilegum leikreglum. „Ef einhverjir hafi framið slíkt brot að þá beri þeir bæði fjárhagslega og refsiréttarlega ábyrgð," segir Birgir. Hann bendir til að mynda á að ef það komi í ljós að menn hafi flutt fjármuni úr landi sé hægt að ná þeim til baka.Birgir segir einnig skipta máli á þessu stigi, og það hafi komið fram á fundi allsherjarnefndar, að gengið sé þannig frá málum að allar upplýsingar séu varðveittar með tryggilegum hætti þannig að ef málin fari lengra og ráðist verði í rannsóknir þá sé hægt að ganga að pappírs- og tölvugögnum. Það sé skilanefnda bankanna að passa upp á þær upplýsingar.
Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent Sex svín drápust eftir annað innbrot Innlent „Þetta er smjörklípa“ Innlent Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Innlent Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Fleiri fréttir Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Lægð nálgast og hviður geta orðið bílum skeinuhættar Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Sjá meira