Ríkinu gert að greiða Tryggingarmiðstöðinni 130 milljónir 23. október 2008 17:20
Hæstiréttur dæmdi í dag íslenska ríkið til að greiða Tryggingamiðstöðinni tæpar 130 milljónir með vöxtum frá árinu 2005 auk 3 milljóna í málskostnað. Málinu var áfrýjað til Hæstaréttar í kjölfar dóms Héraðsdóms Reykjavíkur 2. október 2007. Málið snýr að endurbótum á Þjóðminjasafnsinu en kostnaður við endurbætur á byggingunni varð talsvert hærri en samningar gerðu ráð fyrir. Verktakafyrirtækið Kraftvaki tók að sér að framkvæma endurbætur á safninu árið 2001 og var gert ráð fyrir því að verklok yrðu í október ári seinni. Tryggingamiðstöðin gaf út svokallaða verkábyrgð fyrir Kraftvaka varðandi verkefnið. Síðar sagði Kraftvaki sig frá verkinu og í framhaldinu gerði fjársýsla ríkissins fyrir hönd ríkisins og Tryggingamiðstöin samkomulag í lok árs 2002 þar sem framkvæmd og endurbætur á safninu var tryggð svo hægt væri að ljúka verkefninu. Endurbótum á safninu lauk í september 2004 og var kostnaður hærri en upphaflegi verksamningur ríkisins og Kraftvaka gerði ráð fyrir. Samningurinn var upp á 433 milljónir króna. Íslenska ríkinu og Tryggingarmiðstöðinni greindi á um ábyrðina sem leiddi að lokum til þess að tryggingarfyrirtækið stefndi ríkinu og fór fram á 130 milljónir. Á þá kröfu félst Hæstiréttur í dag líkt og áður sagði. Þá er ríkinu gert að greiða réttargæslustefndu Hornsteinum arkitektum ehf., Verkfræðistofu Guðmundar og Kristjáns hf., Rafhönnun hf., og VSÓ Ráðgjöf ehf. 200.000 krónur í málskostnað hverjum fyrir sig.
Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent Sex svín drápust eftir annað innbrot Innlent „Þetta er smjörklípa“ Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Innlent Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Innlent Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Fleiri fréttir Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Lægð nálgast og hviður geta orðið bílum skeinuhættar Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Sjá meira