Innlent

Fólk verði á ekki á ferðinni á Snæfellsnesi síðdegis og í kvöld

Úr myndasafni.
Úr myndasafni.

Lögreglan á Snæfellsnesi varar vegfarendur við að vera mikið á ferðinni síðdegis og í kvöld.

Veðurstofan hefur spáð norðan 18-25 metrum á sekúndu síðdegis með slyddu og síðan snjókomu en vindur mun síðan snúast í norðvestan og hiti verða um frostmark. Lögreglan býst við mjög slæmu veðri í Staðarsveit. Fólk er hvatt til þess að huga að lausamunum utandyra.

Þessi viðvörun bætist við viðvörun frá almannavörnum vegna illviðrisins sem gengur yfir Vestfirði síðdegis, suðvestanlands undir kvöld og norðanlands á morgun. Þá sendi lögreglan á Vestfjörðum frá sér yfirlýsingu þar sem hún varar við snjóflóðahættu á norðanverðum Vestfjörðum.

 

 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×