Innlent

,,Auðvitað á ríkið að fara í mál"

Jón Daníelsson hefur undanfarin ár starfað sem prófessor við London School of Economics.
Jón Daníelsson hefur undanfarin ár starfað sem prófessor við London School of Economics.

Jón Daníelsson, prófessor í fjármálum við London School of Economics, segir að íslensk stjórnvöld eigi að fara í mál við breska ríkið.

Jón fullyrti í Kastljósi fyrr í kvöld þar sem hann var gestur að Kaupþing væri enn á lífi hefði breska ríkisstjórnin brugðist við á annan hátt og ekki beitt hryðjuverkalögum gagnvart íslenskum hagsmunum. Hann vill að Geir H. Haarde, forsætisráðherra, tilkynni þetta sem fyrst.

Þá átaldi Jón í þættinum viðbrögð íslenskra ráðamanna við útspili starfsfélaga þeirra í Bretlandi og sagði að skilaboðin hafi verið óljós. Almannatengsl hafi brugðist. Sjálfur segist Jón hafa fengið fjölmörg símtöl frá breskum fréttamönnum en hann segist hafa átt erfitt með að svara ýmsum spurningum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×