Innlent

Sektaður fyrir manndrápsgabb

Héraðsdómur Reykjavíkur sektaði morgun karlmann um hundrað þúsund krónur fyrir að hafa gabbað lögreglu.

Maðurinn hringdi frá heimili sínu í Neyðarlínuna og tilkynnti að hann væri með hníf og ætlaði að myrða sambýliskonu sína. Lögreglumenn fóru á vettvang en í ljós kom að um gabb var að ræða. Málið á hendur manninum var þingfest í morgun og að fenginni játningu var dómurinn kveðinn upp.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×