Innlent

Ræddu samstarf Íslands og Litháens í fangelsismálum

Dómsmálaráðherra Litháens heimsækir Litla-Hraun í dag til að kynna sér starfsemi fangelsisins. Hann átti í morgun fund með dómsmálaráðherra Íslands í morgun þar sem rædd voru náin samskipti ráðuneyta landanna í fangelsismálum.

Þrír Litháar sitja nú af sér dóm á Íslandi vegna eiturlyfjamála. Sjö Litháaer eru í gæsluvarðhaldi hér vegna glæpamála. Fangelsismál í Litháen eru á könnu Petras Baguska, dómálaráðherra landsins, sem nú er staddur á Íslandi. Hann átti í morgun fund með Birni Bjarnasyni dómsmálaráðherra og Haraldi Johannessen ríkislögreglustjóra í Þjóðmenningarhúsinu.

Björn Bjarnason dómsmálaráðherra segir að samstarf á sviði fangelsismála hafi verið til umræðu. Rætt hafi verið um að Litháar taki við þarlendum föngum sem afplána dóma hér en aðeins ef samningar Evrópusambandsins séu uppfylltir.

Í dag skoðar Baguska Litla-Hraun og á fund með Páll Agli Winkel, forstjóra Fangelsismálastofnunar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×