Ekki hætt við hátíðarhöld um verslunarmannahelgi þrátt fyrir ólæti 15. júní 2008 18:32
Aldurstakmörk á tjaldstæðunum á Akureyri auðvelduðu lögreglu að fást við ólætin í miðbænum sem þó voru mun meiri en undanfarin ár. Bæjarstjórinn á Akureyri segir að atburðir helgarinnar hafi engin áhrif á hátíðarhöld um verslunarmannahelgina. Lögreglumenn á Akureyri muna vart annað eins ástand í bænum eins og það var í nótt. Dósum og flöskum rigndi yfir lögreglumenn og flugeldum var skotið í átt að þeim. Þá kom til ryskinga þegar reynt var að hindra handtöku og þurfti lögregla að beita kylfum og varnarúða, en slíkum úrræðum hafa lögreglumenn á Akureyra sjaldan beitt. Mikil umræða hefur skapast á Akureyri um aldurstakmörk á tjaldstæðum bæjarins. Gripið var til þeirra fyrir verslunarmannahelgina í fyrra, en þá var 23 ára aldurstakmark og fyrir Bíladaga sem nú er að ljúka var aldurstakmarkið 20 ár. Sigrún Björk Jakobsdóttir, bæjarstjóri á Akureyri, sagði í samtali við Fréttastofu í dag að dapurlegt væri að svona skyldi fara. Hún tekur þó fram að Bíladagar hafi tekist mjög vel og langflestir hafi verið til fyrirmyndar, en því miður hafi örfáir svartir sauðir sett svartan blett á hátíðina. Orðrómur hefur verið í gangi á Akureyri að til standi að leggja niður útihátíðina Ein með öllu um verslunarmannahelgina. Bragi Bergmann, einn stofnenda Vina Akureyrar sem staðið hafa fyrir hátíðinni undanfarin 7 ár, hefur lokið afskiptum sínum af hátíðinni vegna óánægju með framgöngu bæjarstjóra vegna aldurstakmarkanna. Hann segir kraftaverk ef að hátíðinni verður í ár, því langflestir styrktaraðilar hátíðarinnar hafi hlaupist á brott og enn eigi eftir að bóka öll skemmtiatriði. Sigrún Björk segir hins vegar að unnið sé að undirbúningi hátíðarhalda í góðu samstarfi við Vini Akureyrar og að atburðir helgarinnar breyti engu þar um.
Mest lesið Kvaddi hundinn sem bjargaði lífi hennar uppi í rúmi Innlent Mannfallið að nálgast tvær milljónir Erlent Innlit á Litla-Hraun í erlendri heimildarmynd Innlent Svíar líta til kjarnorkuvopna Erlent Tónninn breytist með yfirmannaskiptum hjá ICE Erlent Þrír eldar á sama tíma á höfuðborgarsvæðinu Innlent Sjóðir að tæmast og uppsagnir í kortunum Innlent Þórdís Kolbrún blæs á sögusagnir um vistaskipti Innlent Engar kveðjur fengið frá Kristrúnu Innlent Samstarf um farsímasjónvarp Innlent Fleiri fréttir Kvaddi hundinn sem bjargaði lífi hennar uppi í rúmi Þrír eldar á sama tíma á höfuðborgarsvæðinu Innlit á Litla-Hraun í erlendri heimildarmynd Púðurtunnan Vestanhafs, þandar taugar og hörð lending Engar kveðjur fengið frá Kristrúnu Borgarfulltrúi fer ekki aftur fram og hættir í Pírötum Ekki hægt að fullyrða að andlát hafi tengst Covid-19 bólusetningu „Einfaldlega ósammála“ gagnrýni ráðuneytisins Kynna einn frambjóðanda á dag næstu daga Ekki skrýtið að eitthvað bresti vegna álags á framlínustarfsmenn Tveir grunaðir um að rækta hundruð kannabisplantna Verkalýðshreyfingin úti á túni með sitt tal? Mál rússnesku fjölskyldunnar: Króatía sé talið öruggt land Enga ákvörðun tekið um Þórdísi Kolbrúnu Heiða tekur annað sætið í Reykjavík Meiri hveralykt af vatninu vegna viðhalds og viðgerðar Sjóðir að tæmast og uppsagnir í kortunum Heiða hefur ekki heldur svarað uppstillingarnefnd Helga Kristín gengur til liðs við Miðflokkinn Innleiða bílnúmeralesara til að athuga hvar bílar eru skráðir Stefnir í hallarekstur og uppsagnir hjá Stígamótum „Þetta er auðvitað glæsilegt fyrir flokkinn“ Þingfundi ekki frestað vegna handboltans Leitað að fleira fólki á lista Samfylkingarinnar í Reykjavík Þórdís Kolbrún blæs á sögusagnir um vistaskipti Eldur kviknaði í Strætó Starfslokasamningar kostað undirstofnanir fleiri hundruð milljónir Taka á móti fyrstu drengjunum í meðferð í lok febrúar Fannst vanta stemmningu í skólann og skipulögðu handboltamót Foreldrar loki á samskipti barna við ömmu og afa Sjá meira