Innlent

Veiðimenn á Austfjörðum með allt á hreinu

Menn á gæsa- og hreindýraveiðum í umdæmi lögreglunnar á Seyðisfirði um helgina virðast hafa farið að lögum og reglum í hvívetna ef marka má frétt lögreglunnar.

Farið var í eftirlitsferð í TF-EIR, þyrlu Landshelgisgæslunnar. Var farið vítt og breytt yfir umdæmið og fylgst með veiðum og hugsanlegum utanvegaakstri. Allt reyndist í góðu lagi, nokkuð var um hálendisumferð í umdæminu og ekki varð annað séð en veiði- og ökumenn færu að reglum í hvívetna. Lögreglan á Seyðisfirði segir veiðimenn alltaf mega búast við eftirliti úr lofti.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×