Utanríksiráðherrar norrænu ríkjanna vilja lýðræði í Simbabve 25. júní 2008 09:19 MYND/Pjetur
Utanríkisráðherrar norrænu ríkjanna hafa sent frá sér yfirlýsingu þar sem tekið er undir ályktun öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna varðandi ástandið í Simbabve. Þar er pólitískt ofbeldi í Simbabve fordæmt og skorað er á stjórn Simbabve að stöðva ofbeldisölduna sem riðið hefur yfir, að láta þegar í stað af hótunum í garð stjórnarandstæðinga, leyfa fundi og samkomur og láta lausa stjórnmálaleiðtoga sem hafa verið teknir höndum. Fram kemur á heimasíðu utanríkisráðuneytisins að ráðherrarnir hafi miklar áhyggjur af þróun mála í Simbabve, þar sem ofbeldisverk og árásir stjórnvalda hafa aukið gríðarlega á vanda óbreyttra borgara og grafið undan trúverðugleika forsetakosninganna sem halda á á föstudag. Segja ráðherrarnir ljóst að kosningaferlið brjóti í bága við allar reglur sem gilda um frjálsar og réttlátar kosningar. Tilbúin að styðja lýðræðislega stjórn Bent er á að norrænu ríkin hafi átt mikil og vaxandi samskipti við samtök ríkja í sunnanverðri Afríku, SADC, þar sem lögð hafi verið áhersla á frið, mannréttindi, lýðræði og uppbyggingu réttarríkja. „Í ljósi þessa skora utanríkisráðherrar Norðurlandanna á ríkin í sunnanverðri Afríku að grípa þegar í stað til aðgerða til að finna lýðræðislega lausn á ástandinu. Fagna ráðherrarnir tilraunum Sambíu, sem fer fyrir ríkjahópnum, til að finna lausn á ástandinu. Þá skora ráðherrarnir á Afríkubandalagið að koma beint að lausn á ástandinu í Simbabv," segir í yfirlýsingunni. Þá krefjast norrænu ráðherrarnir þess að öryggi Morgans Tsvangirari, leiðtoga stjórnarandstöðflokksins MDC, verði tryggt en hann neyddist til að leita skjóls í sendiráði Hollands í höfuðborginni Harare á dögunum. Ráðherrarnir segja enn fremur að binda verði enda á ofbeldi og leggja verði drög að lögmætri, lýðræðislegri og umbótasinnaðri stjórn í Simbabve. Norrænu ríkin séu reiðubúin að veita slíkum stjórnarumbótum öflugan stuðning og munu leggja á það höfuðáherslu í samskiptum sínum við ríkin í sunnanverðri Afríku.
Mest lesið Fegursta flugvél Íslands rifin Innlent Óttast að yfir áttatíu hafi farist Erlent Túlkunaratriði hvað eigi að gera við umsóknina Innlent Segir Repúblikönum að tala meira um afrek hans Erlent „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Innlent Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Ásakanir á víxl milli leyniþjónusta eftir skothríð í Kænugarði Erlent „Ekkert af þessu er beinlínis að hjálpa okkur“ Innlent Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Innlent Ruddist inn í íbúð og reyndi að komast inn á upptekið baðherbergið Innlent Fleiri fréttir Túlkunaratriði hvað eigi að gera við umsóknina Ruddist inn í íbúð og reyndi að komast inn á upptekið baðherbergið Fegursta flugvél Íslands rifin „Ekkert af þessu er beinlínis að hjálpa okkur“ „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Slaka á kröfum um íbúðastærðir og verslunarrými á jarðhæð Með umtöluð símtöl og skilaboð á sínu borði Kalla eftir ákvörðun um milljarðaáform í Skálafelli Búið að opna fyrir umferð að nýju eftir bilunina Tímamót hjá Kvennaathvarfinu Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Sérstakt viðbragð á Ljósanótt vegna unglingadrykkju Hámark bílastæða við nýbyggingar falli niður Óvirk umferðarljós valda töfum Skuld fyrri eiganda stöðvi ekki skoðun bíls Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Pallborðið: Línurnar lagðar fyrir spennandi þing Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Þorgerður kallaði Rússa á teppið og auknar heimildir lögreglu Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Víðáttumikil lægð fyrir sunnan land Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Þjófnaður í þremur verslunum Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Sjá meira