Handteknir við sviðsetningu á ráni 15. janúar 2008 09:57 MYND/Hari
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handtók í gær tvo menn sem höfðu skipulagt sviðsetningu á ráni í verslun í austurborginni. Eftir því sem segir í tilkynningu lögreglunnar fóru rannsóknarlögreglumenn í verslunina með það fyrir augum að handtaka starfsmann vegna gruns um að hann hefði verið viðriðinn nýleg rán í annarri verslun í borginni. Lögreglumennirnir höfðu ekki verið lengi inni í versluninni þegar grímuklæddur maður kom skyndilega inn vopnaður hnífi. Lögreglumennirnir handtóku manninn og reyndist vera um að ræða vin starfsmanns verslunarinnar. Var starfsmaðurinn því einnig handtekinn, en hann hafði einungis unnið í versluninni í fjóra daga. Við yfirheyrslur kom í ljós að mennirnirnir, sem eru báðir á tvítugsaldri, höfðu undirbúið og skipulagt sviðsetningu á ráni í versluninni í þeim tilgangi að ná peningum, símainneignum og tóbaki. Aðkomumaðurinn hafði verið klæddur í tvennar peysur og tvennar buxur. Þótt kalt hafi verið úti var það ekki skýringin á klæðnaðinum heldur ætlaði maðurinn að komast fljótt úr fötunum og henda af sér á leið af ránsvettvangi. Við yfirheyrslu játaði aðkomumaðurinn að hafa ætlað að ræna verslunina og að starfsmaðurinn hefði undirbúið verknaðinn og látið sig vita þegar láta átti til skarar skríða, skömmu áður en lögreglumennirnir komu á vettvang. Við húsleit heima hjá starfsmanni verslunarinnar fannst þýfi, sem tengist innbrotum, m.a. um nóttina í Borgarfirði. Um var að ræða fartölvur og skjávarpa.
Mest lesið „Það er ósatt, ósatt með öllu“ Innlent Sættir sig ekki við sýknu lögreglumannsins Innlent Kennarasambandið mismunaði konu Innlent „Fokk ðe queers og fullt af atkvæðum?“ Innlent „Húsið er náttúrulega einstaklega fagurt“ Innlent Sjálfstæðisflokkurinn flytur í húsnæði Sjóvár Innlent Mandelson veitt öryggisheimild þrátt fyrir að hafa fallið á bakgrunnsathugun Erlent Skiptir um nefnd eftir tvo daga í þeirri fyrri Innlent Stöðvaður með of marga farþega og einn í skottinu Innlent Máttu vísa mæðgunum úr félaginu eftir allt saman Innlent Fleiri fréttir Takmarkaður áhugi Petoro á Drekasvæðinu Mörg dæmi um að tekið sé sérstakt tillit til umsóknarríkja „Það er ekki hægt að plata þjóðina inn í Evrópusambandið“ Skiptir um nefnd eftir tvo daga í þeirri fyrri Bak við lás og slá grunaður um risastórt kókaínsmygl Sjávarútvegsstjóri ESB í heimsókn og fíkniefni í Norrænu Frestur til að svara fyrirspurn ESA löngu útrunninn Bein útsending: Fundur atvinnuvegaráðherra og sjávarútvegsstjóra ESB Sættir sig ekki við sýknu lögreglumannsins Máttu vísa mæðgunum úr félaginu eftir allt saman Flestir vilja leiguþak Sjálfstæðisflokkurinn flytur í húsnæði Sjóvár Dæmdur í 30 daga skilorðsbundið fangelsi fyrir að ráðast á dreng vegna dyraats „Húsið er náttúrulega einstaklega fagurt“ Stöðvaður með of marga farþega og einn í skottinu „Það er ósatt, ósatt með öllu“ Samningur um Ísafjörð tryggir rekstur Q200-véla Icelandair Kennarasambandið mismunaði konu Útlit fyrir að íslensk stjórnvöld brjóti gegn alþjóðasamningum „Fokk ðe queers og fullt af atkvæðum?“ Meitlarnir komust loks í forgang eftir stefnubreytingu Stóra aðgerðin valdi titringi á fíkniefnamarkaði Ekki síður í vandræðum með bóklega kennslu Áhrif smyglmáls og hugsanleg brot stjórnvalda á alþjóðlegum skuldbindingum Flúði heimili sitt eftir að hafa hótað stofnun MMS ekki kunnugt um neinar breytingar á einkunnagjöf Aðstoðarskólastjóri Stapaskóla biður nærsamfélagið um hjálp Félag Ragnars Freys telur uppsögn hans ólögmæta Skálmöld stígur ölduna í héraðsdómi „Áfall fyrir starfsfólk“ Sjá meira