Prestabíll í ljósum logum - myndband 8. júlí 2008 19:14
Þrír pólskir prestar og biskup voru hætt komnir þegar bíll þeirra fór út af í Vatnsdal í dag og varð alelda á skömmum tíma. Þrír þeirra voru fluttir á sjúkrahúsið á Akureyri en eru ekki alvarlega slasaðir. Lögreglan á Blönduósi fékk tilkynningu um slysið skömmu eftir hádegi. Þegar hún kom á staðinn voru mennirnir fjórir allir komnir út úr bílnum en eldur logaði í vél bílsins. Skömmu síðar var bílinn orðinn alelda. Þegar slökkviliðið kom á staðinn skíðlogaði í bílnum og svartan reyk lagði frá honum. Mennirnir sem eru á sextugs og sjötugsaldri komu hingað til lands fyrir nokkrum dögum til að ferðast um landið og skoða sig um. Þeir voru á leiðinni á Akureyri þegar slysið varð. Þeir eru allir pólskir og er einn þeirra biskup hjá kaþólsku kirkjunni en hinir þrír prestar og fengu þeir bílinn lánaðan hjá kaþólskum presti sem býr hér á landi. Slysið varð skammt frá bænum Sveinsstöðum í Vatnsdal. Svo virðist sem þeir hafi misst stjórn á bílnum þegar þeir voru að koma úr beygju, misst bílinn út af og ekið niður brekku þar sem bíllinn stöðvaðist. Mennirnir voru fyrst fluttir á Heilbrigðisstofnunina á Blönduósi til aðhlynningar en þaðan voru þrír þeirra fluttir á sjúkrahúsið á Akureyri til frekari skoðunar. Meiðsl þeirra eru ekki talin alvarleg en einhverjir þeirra beinbrotnuðu og fengu skurði. Lögreglan á Blönduósi rannsakar tildrög slysins en bílinn er gjörónýtur. Ótrúlegar myndar af slysinu má sjá með frétt Stöðvar 2 hér fyrir ofan.
Mest lesið Þrír flokkar skipa efstu sætin í nær öllum kjördæmum Innlent Æðsti yfirmaður NASA: „Fylgjandi því að gera Plútó aftur að reikistjörnu“ Erlent Töluverður viðbúnaður lögreglu í Kópavogi Innlent „Í versta falli alvarleg forréttindablinda“ Innlent Leist ekki á tillögu um opnun Hormússunds Erlent „Þetta á náttúrulega ekki að gerast“ Innlent Taldi að vegabréfinu hefði verið stolið við Skógafoss Innlent Handtekinn eftir að rottueitur fannst í barnamat Erlent Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Innlent Katla kjörin forseti Stúdentaráðs Innlent Fleiri fréttir Þrír flokkar skipa efstu sætin í nær öllum kjördæmum „Í versta falli alvarleg forréttindablinda“ Katla kjörin forseti Stúdentaráðs Töluverður viðbúnaður lögreglu í Kópavogi Taldi að vegabréfinu hefði verið stolið við Skógafoss „Þetta á náttúrulega ekki að gerast“ „Mjög gott að við höfum náð að slíðra sverðin“ Vinna að spálíkani til að skima sjálfvirkt fyrir vannæringu Beint: Pallborð Leigjendasamtakanna um húsnæðismál Glapræði að fella niður einu ferð dagsins: „Er öllum sama þó Grímsey fari í eyði?“ Það geti ekki hvaða skip sem er dýpkað í mynni Landeyjahafnar „Flokkur fólksins tekur í rauninni út óánægju með ríkisstjórnina“ Óska þess að ákvörðun um spítalann liggi fyrir sem fyrst Meirihlutinn á þingi fallinn, gremja í Grímsey og risadagur í íþróttunum Gulu hjólunum stillt upp á slysstöðum Verkalýðsfélögin úrelt og þau hefði mátt leggja niður um aldamótin Beittir lögreglutökum eftir ógnandi tilburði í miðbæ Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Sjá meira