Erlent

Upprættu barnaklámshring í Ástralíu

Lögreglan í Ástralíu hefur upprætt umfangsmikinn barnaklámshring og handtekið 70 manns í tengslum við rannsókn málsins.

Að baki þessu máli liggur sex mánaða rannsókn lögreglunnar á því hvernig barnaklámshringur þessi starfaði og skiptist á myndum í gegnum netið.

Meðal þeirra sem handteknir voru eru lögreglumaður og nokkrir kennarar. Lögregluyfirvöld segja að von sé á fleiri handtökum í þessu máli á næstunni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×