Nýir valdhafar í Bandaríkjunum geta orðið góðir vinir Íslendinga Jón Hákon Halldórsson. skrifar 5. nóvember 2008 16:21 „
Það hefur verið lögð á það áhersla núna á undanförnum vikum að við þurfum að styrkja okkar sess í veröldinni og okkar orðspor og afla okkar traustra og nýrra vina. Og ég held að þessi liðssveit sem er að komast til valda í Washington hafi alla burði til þess að verða vinir Íslendinga ef við höldum sjálf rétt á málum," segir Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, i samtali við Vísi.Samskiptin geta aukist Ólafur Ragnar segist eiga von á því að samskipti Íslendinga og Bandaríkjamanna geti aukist með tilkomu nýrra valdhafa í Hvíta húsinu. Obama og margt fólk í hans liðssveit sé þannig gert að það sé reiðubúið til að hlusta á hvað fólk hafi fram að færa og sé þannig líklegra að til að kalla fram opnari umræðu en verið hefur í Hvíta húsinu á undanförnum árum. Ólafur Ragnar hefur átt mikil samskipti við Obama og helstu samstarfsmenn hans, einkum vegna sameiginlegs áhuga á nýtingu hreinna orkugjafa. Hann fundaði meðal annars með Obama fyrr á árinu. „Ég hef átt ítarlegar samræður við hann um yfirvofandi loftslagsbreytingar og hinar alþjóðlegu baráttu sem þarf að fara fram til að koma í veg fyrir þær og þá sértaklega hvernig árangur Íslendinga við nýtingu hreinnar orku gæti nýst Bandaríkjunum við að gjörbreyta orkunotkun frá olíu og kolum til hreinna orkugjafa," segir Ólafur Ragnar. Ólafur og Obama á góðri stund þegar forsetinn heimsótti Washington í mars á síðasta ári.MYNDRebecca Hammel Hrein orka grundvallaratriði fyrir ObamaÓlafur Ragnar segir að Obama hafi gert það að einum af höfuðþáttum í sinni stefnu að breyta orkukerfi Bandaríkjanna og stuðla að orkubyltingu sem byggist á nýtingu hreinna orkugjafa. Bandaríkin hafi gríðarlega möguleika á sviði jarðhita sem hafi lítið verið nýttir enn sem komð er. Ólafur sagðist hafa látið Obama í té kynningabækling sem hafi verið tekinn saman í forsetaembættinu um framlag Íslands til þessa málaflokks. „Niðurstaðan varð sú að hann taldi kjörið að reynsla, tæknikunnátta og vísindaþekking íslendinga á þessu sviði yrði nýtt þegar Bandaríkin myndu með nýjum forseta ýta slíkri orkubyltingu í vör," segir Ólafur Ragnar. Þá segist Ólafur Ragnar hafa átt samtöl við fjölmarga samherja Obama, meðal annars demókrata í öldungadeild og fulltrúadeild og ýmsa embættismenn sem hafi átt forystu um stefnumótun á sviði orkumála. „Þannig að ég er sannfærður um það að með nýrri ríkisstjórn í Bandaríkjunum og nýrri forystu verði leitað eftir því að tæknikunnátta og þekking og reynsla Íslendinga á þessu sviði muni verða nýtt," segir Ólafur Ragnar. Hann segir að Íslendingar verði að velta því fyrir sér hérna heima hvernig hægt sér að hagnýta þessa möguleika og ekki láta þá erfiðleika sem blasa við nú koma í veg fyrir að hægt sé að sækja aukna hagsæld í slíkt samstarf við Bandaríkin á sviði orkumála.Munu vilja fræðast um efnahagshamfarirnar á Íslandi Þá segist Ólafur hafa trú á því að bæði Obama og hans liðsmenn muni hafa áhuga á því að ræða reynslu Íslendinga af þeim hamförum sem hafi gengið yfir í fjármálakerfinu og hvernig lítið land eins og Ísland hafi orðið úti í þessu ölduróti og hvaða lærdóm megi að því draga í endurskipulagningu hins alþjóðlega fjármálakerfis hinna svokölluðu Bretton Woods stofnana. Ólafur segist telja að sá vinahópur sem Íslendingar eigi í þinginu og í hópi hinna nýju valdhópa sé þannig stefndur að hann hafi áhuga á því að hlusta á Íslendinga í þessum efnum.
Mest lesið Rannsaka ásakanir á hendur ríkissáttasemjara Innlent Skotárás á Times Square Erlent Lést eftir skyndileg veikindi við klettastökk Innlent Rekinn eftir tvo mánuði hjá skattinum og samdægurs tilnefndur sendiherra á Íslandi Erlent Alelda bíll í Þórsmörk Innlent Gefur ekkert landsvæði eftir Erlent Samdráttur og vítahringur í boði stjórnvalda Innlent Segjast ekkert hafa vitað um hætturnar í Reynisfjöru Innlent Amma ræsti neyðarhnapp við enn eina árás dóttur sinnar Innlent Aserar og Armenar skrefi nær friði eftir sögulegan fund í Hvíta húsinu Erlent Fleiri fréttir Alelda bíll í Þórsmörk Vond niðurstaða Úkraínu, ásakanir á hendur sáttasemjara og síðasta hlaupið Mikill meirihluti hefur áhyggjur af stríðsátökum Rannsaka ásakanir á hendur ríkissáttasemjara Samdráttur og vítahringur í boði stjórnvalda Ekki stafi lengur tilvistarógn af Hamasliðum Lést eftir skyndileg veikindi við klettastökk Segjast ekkert hafa vitað um hætturnar í Reynisfjöru Féll fjóra metra í vinnuslysi í Kópavogi Ómeðvitaðir ferðamenn í Reynisfjöru, síbökuð hjón og tölvuspil fram á nótt Enginn árangur af „veiða og sleppa“ aðferðinni Flokkarnir dæla milljónum í áróður á Meta Hræðast að fleiri en einn fari í sjóinn Átökin „hvorki vegna né þrátt fyrir“ áfengissöluna Heitavatnslaust í Laugardal Lést við flúðasiglingar í Vestari-Jökulsá Langflestir telja sig búa á góðum stað fyrir samkynhneigða Áttu ekki von á neinu veseni og viðbúnaður eftir því Amma ræsti neyðarhnapp við enn eina árás dóttur sinnar Maður féll í Vestari-Jökulsá Fangar í einangrun vegna sama máls noti ekki sama útisvæði Hundarnir þegar aflífaðir en ákvörðun um lógun ólögmæt Samskipti fanga í einangrun, tapsárir Danir og drottning Gleðigöngunnar Allir fundir við ESB „fyrst og fremst“ hagsmunagæsla Telja að lífvörður myndi aðeins gera ferðamenn kærulausari Esjan snjólaus og það óvenju snemma Íslendingurinn í Grikklandi laus úr haldi Dvalarleyfi langtum dýrara í hinum Norðurlöndunum Lögreglurannsókn á banaslysi í Brúará „svo til“ lokið Nauðsynlegt að fólk fái úrræði til að vernda sig frá djúpfölsunum Sjá meira