Innlent

Fríverslunarsamningur við Kólumbíumenn

MYND/Pjetur

EFTA-ríkin hafa gert fríverslunarsamning við Kólumbíu og lauk samningaviðræðum í Crans-Montana í Sviss 12. júní. Samningaviðræður stóðu yfir í tæplega eitt ár.

Í tilkynningu frá utanríkisráðuneytinu segir að samningurinn geri ráð fyrir að tollar á sjávarafurðum og iðnaðarvörum frá Íslandi falli niður frá gildistöku samningsins eða að afloknu 5-10 ára aðlögunartímabili. Jafnframt njóta útflutningsafurðir íslensks landbúnaðar eins og lifandi hross, lambakjöt og vatn tollfrelsis frá gildistöku eða að 10 árum liðnum. Þá munu samningsaðilar lækka eða fella niður tolla af ýmsum unnum landbúnaðarvörum.

Samningurinn verður undirritaður við fyrsta tækifæri. Að lokinni undirritun þarf að fullgilda hann í einstökum EFTA-ríkjum og Kólumbíu svo hann öðlist gildi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×