Innlent

Harma verkfallsboðun flugumferðarstjóra

Stjórn Flugstoða ohf. harmar mjög verkfallsboðun Félags íslenskra flugumferðastjóra (FÍF) og vonar að til verkfalls þurfi ekki að koma. Samtök atvinnulífsins (SA) eru viðsemjendur FÍF í þessari kjaradeilu, en samningafundir SA og FÍF hófust um síðustu áramót.

Þetta segir í yfirlýsingu frá Flugstoðum vegna málsins. Þar segir ennfremur:

„Einungis 52,7% flugumferðastjóra sem starfa hjá Flugstoðum tók þátt í atkvæðagreiðslunni um þessi boðuðu verkföll, eða 39 flugumferðastjórar.

Þau 20 verkföll sem hafa verið boðuð eru á háannatíma ferðalaga til og frá landinu og innanlands. Þau hafa mikil áhrif á ferðalög Íslendinga sem og erlendra ferðamanna sem heimsækja landið.

Ljóst er að flugrekendur munu bera mikinn skaða af þessum aðgerðum, en rekstrarumhverfi þeirra hefur ekki í annan tíma verið verra en um þessar mundir, vegna síhækkandi eldsneytisverðs og erfiðleika í efnahagslífi, bæði hérlendis og erlendis. Skaði ferðaþjónustuaðila um land allt verður einnig verulegur, komi til verkfalla. Ljóst er að fyrirhuguð verkföll flugumferðastjóra munu leiða af sér seinkanir á flugi í fleiri klukkustundir en það setur allt tengiflug í uppnám. Ferðamaður sem missir af tengiflugi ber þann skaða sjáfur.

Aðgerðir flugumferðastjóra geta því leitt til ómælds skaða fyrir íslenska flugrekstraraðila, ferðaþjónustuna og almenning. Þær munu einnig hafa mjög neikvæð áhrif á skuldbindingar Íslendinga gagnvart erlendum flugfélögum og Alþjóðaflugmálastofnuninni vegna þess hlutverks, sem Íslendingum hefur verið falið við stjórnun flugumferðar á Norður - Atlantshafi.

Stjórn Flugstoða skorar á flugumferðastjóra að endurskoða ákvörðun sína hvað varðar boðun þessara 20 verkfalla. Samningaviðræður milli FÍF og SA hófust um síðustu áramót og hefur flugumferðastjórum verið boðinn skammtímasamningur í þeim anda sem flugstéttir hafa þegar samþykkt, einnig samningar til lengri tíma, allt að fjögurra ára. Flugumferðarstjórar hafa hafnað öllum tillögum SA, þótt samtökin hafi gengið eins langt í tilboðum sínum og þau hafa talið mögulegt.

Skaði af boðuðum verkföllum flugumferðastjóra getur orðið varanlegur fyrir íslenskt samfélag og ímynd lands og þjóðar."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×