Íslensk stúlka í bekk með Ágústi - Móðirin afar ósátt Andri Ólafsson skrifar 9. september 2008 16:53
Íslensk stúlka sem er í sama bekk og Ágúst Magnússon í biblíuskóla Livets ord í Uppsölum, fékk ekki að vita fyrr en í gær að Ágúst væri dæmdur barnaníðingur. Vísir ræddi við móður stúlkunnar í dag en hún er afar ósátt. Ágúst er á reynslulausn eftir að hafa brotið kynferðislega gegn sex drengjum. Hann er að mati sálfræðings haldinn barnagirnd á alvarlegu stigi og líklegur til að brjóta aftur af sér. Tanja Rós Ívarsdóttir er 18 ára íslensk stúlka sem hóf nám í Livets Ord biblíuskólanum á sama tíma og Ágúst. Hvorki hún né samnemendur hennar vissu að Ágúst væri dæmdur barnaníðingur. Þeim upplýsingum hélt Staffan Moberg, skólastjóri biblíuskólans, frá nemendum að beiðni Ágústs. Foreldrar Tönju á Íslandi hringdu í dóttur sína í gær og sögðu henni af málinu í kjölfar frétta Vísis af Ágústi. Foreldrarnir eru afar ósáttir við Ágúst og segja að hann hefði átt að koma heiðarlega fram og segja frá bakgrunni sínum. "Ég er ekki sátt við að hann hafi ætlað að halda bakgrunni sínum leyndum fyrir samnemendum sínum," segir Hrefna Rós Wiium, móðir Tönju. "Ég held að engin móðir væri sátt við það að vita af barnaníðingi í sama 45 manna bekk og 18 ára dóttir sín," bætir hún við. Hrefna tekur það fram að hún vilji ekki sverta Livets ord biblíuskólann enda hafi fjölskylda hennar haft góða reynslu af honum. Gremja hennar beinist að Ágústi fyrir að hafa ætlað að halda fortíð sinni leyndri fyrir dóttur hennar og samnemendum.
Tengdar fréttir Fangelsismálastofnun leyfir Ágústi að ganga á guðs vegum Ágúst Magnússon er enn á reynslulausn og þarf því sérstakt leyfi frá fangelsismálayfirvöldum til þess að sækja biblíuskólann í Uppsölum. 8. september 2008 13:19 Barnaníðingur í biblíuskóla Ágúst Magnússon, sem nýlega losnaði úr fangelsi eftir fimm ára fangelsisdóm sem hann fékk fyrir kynferðisbrot gegn sex drengjum, hefur hafið nám við Livets Ord biblíuskólann í Uppsölum í Svíþjóð. 8. september 2008 12:15 Saksóknari vildi Ágúst vistaðan á stofnun að lokinni afplánun Í réttarhöldunum yfir Ágústi Magnússyni krafðist ríkissaksóknari þess að Ágúst Magnússon yrði beittur öryggisráðstöfunum að lokinni afplánun á fangelsisdómi sínum. 8. september 2008 16:02 Mest lesið Fjögurra tonna eldflaugabútur skall á tunglið á ógnarhraða Erlent Skipverjar gangi örna sinna í vaska og lögmaðurinn fullur Innlent Verja fúlgum fjár í að hafa upp á þeim sem gagnrýna ICE á netinu Erlent Samræði við þrettán ára stjúpsystur ekki nauðgun að mati héraðsdóms Innlent Lögreglan mun fylgja skipverjunum úr landi Innlent Reyndust báðir vopnaðir, annar hamri og hinn öxi Innlent Ítrekað hjólað á móti umferð Innlent Segir lögreglu skrumskæla gamansöm ummæli Innlent Handtekinn á golfvelli Trump með hlaðna byssu Erlent „Hverjir eru á bak við það?“ Erlent Fleiri fréttir Lögreglan mun fylgja skipverjunum úr landi Samræði við þrettán ára stjúpsystur ekki nauðgun að mati héraðsdóms Reyndust báðir vopnaðir, annar hamri og hinn öxi Segir lögreglu skrumskæla gamansöm ummæli Landsmönnum fjölgaði um 1.450 á öðrum ársfjórðungi Ítrekað hjólað á móti umferð Marktækur munur á fylgi Samfylkingar og Sjálfstæðisflokks Skipverjar gangi örna sinna í vaska og lögmaðurinn fullur Meirihluti telur vexti lækka en undanþágu í sjávarútvegi ólíklega Ný ESB-könnun, skipverjar Bandero og óþarfa hætta á Hverfisgötu Skipverjarnir mega allir fara frá borði Næturborun í sjó lokið og verktakar þakka íbúum þolinmæðina Minnst einn skipverji Bandero má fara frá borði „Við látum ekki fæla okkur aftur inn í skápinn“ „Við erum svolítið strand“ Útsýnispallurinn talinn öruggur þrátt fyrir sprungur Slökktu eld í jepplingi á „örskotsstund“ Ruglingslegar og misvísandi frásagnir um fjóra til fimmtán árásarmenn Engir minkar hafi ratað í gildrur síðustu sólarhringa „Ekki skemmtilegt fyrir starfsfólk“ Gríðarlegur fjöldi fyrir norðan og mikil óþolinmæði á heimleið Kólumbíumenn í haldi og skipverjar Bandero bíða örlaga sinna Fjölskyldan í haldi vegna gruns um innflutning fíkniefna Heimir Hannesson er látinn Breytir ekki veðurspám til að þóknast hátíðahöldurum Skipar nýja bótanefnd Vill breyta lögum um .is Enn eitt innbrotið í miðbænum Ekkert heyrt frá fjölskyldunni frá því að hún flaug til Íslands í síðustu viku Uppgefinn einyrki við Hverfisgötu kveður Sjá meira
Fangelsismálastofnun leyfir Ágústi að ganga á guðs vegum Ágúst Magnússon er enn á reynslulausn og þarf því sérstakt leyfi frá fangelsismálayfirvöldum til þess að sækja biblíuskólann í Uppsölum. 8. september 2008 13:19
Barnaníðingur í biblíuskóla Ágúst Magnússon, sem nýlega losnaði úr fangelsi eftir fimm ára fangelsisdóm sem hann fékk fyrir kynferðisbrot gegn sex drengjum, hefur hafið nám við Livets Ord biblíuskólann í Uppsölum í Svíþjóð. 8. september 2008 12:15
Saksóknari vildi Ágúst vistaðan á stofnun að lokinni afplánun Í réttarhöldunum yfir Ágústi Magnússyni krafðist ríkissaksóknari þess að Ágúst Magnússon yrði beittur öryggisráðstöfunum að lokinni afplánun á fangelsisdómi sínum. 8. september 2008 16:02