Innlent

Makalaust að embættismenn hóti stjórnvöldum

Álfheiður Ingadóttir, þingmaður Vinstri - grænna, segir það makalaust að stjórn Samorku, sem skipuð er forsvarsmönnum stærstu orkufyrirtækja landsins sem jafnframt eru í opinberri eigu, skuli leyfa sér að hóta stjórnvöldum að leita til dómstóla endurskoði þau ekki ákvörðun sína um að álver á Bakka og tengdar framkvæmdir skuli í sameiginlegt umhverfismat.

Samorka, sem eru samtök orku- og veitufyrirtækja, sendi fyrr í dag frá sér ályktun þar sem skorað var á stjórnvöld að endurskoða ákvörðun sína til að lágmarka þann skaða sem að óbreyttu gæti hlotist af úrskurðinum. Ef ekki næðist ásættanleg niðurstaða í þeim efnum teldi stjórnin nauðsynlegt að dómstólar skæru úr um lögmæti úrskurðar Þórunnar Sveinbjarnadóttur umhverfisráðherra.

„Að menn skuli leyfa sér svona hótanir er alveg makalaust," segir Álfheiður Ingadóttir og bendir á að stjórn félagsins sé skipuð embættismönnum á launum hjá þjóðinni. Formaður stjórnar Samorku er Franz Árnason, forstjóri Norðurorku, og meðal annara stjórnarmanna eru Friðrik Sophusson, forstjóri Landsvirkjunar, Hjörleifur Kvaran, forstjóri Orkuveitu Reykjavíkur, Júlíus Jónsson, forstjóri Hitaveitu Suðurnesja, og Tryggvi Þór Haraldsson, forstjóri Rarik. Þá bendir Álfheiður á að stjórn Samorku færi ekki neinar röksemdir fyrir því að úrskurður ráðherra sé ólöglegur.

Álfheiður segir þetta beinar hótanir. Hún minnir enn fremur á að Össur Skarphéðinsson iðnaðarráðherra hafi lýst því yfir á Alþingi í gær að hann hyggist endurnýja rannsóknarleyfi fyrir norðan vegna tilraunaborana á háhitasvæðum þrátt fyrir úrskurð Þórunnar um heildstætt umhverfismat. Þá hafi Össur lýst því yfir að allir ráðherrar ríkisstjórnarinnar væru fylgjandi álveri á Bakka. Þetta sýndi að verið væri að einangra Þórunni Sveinbjarnardóttur í Samfylkingunni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×