Innlent

Landhelgisgæslan stóð Norðmenn að meintum ólöglegum veiðum

Þyrla Landhelgisgæslunnar, TF-GNÁ, stóð norska línuveiðiskipið Gayser Senior að meintum ólöglegum veiðum inni á lokuðu svæði í Skaftárdjúpi undan Suðausturlandi, við eftirlit í gærkvöld. Svæðið er lokað með reglugerð um friðun hrygningarþorsks og skarkola á vetrarvertíð og hefur verið lokað á þessum tíma undanfarin ár.

Stýrimaður þyrlunnar seig um borð í skipið og rannsakaði meint brot, fór yfir afladagbækur og önnur skipsskjöl. Að þeirri athugun lokinni var ákveðið að vísa skipinu til hafnar í Vestmannaeyjum þar sem mál hans verður tekið til nánari rannsóknar af lögreglustjóranum í Vestmannaeyjum.

Að sögn Gísla Óskarssonar, fréttaritara í Eyjum, er skipið komið að bryggju. Ekki hafa fengist neinar upplýsingar um áhöfnina, en talið er víst að skipið hafi verið á lúðu eða lönguveiðum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×