Geir oftast í fréttum - Björn sjaldnast 17. júlí 2008 11:19
Ráðherrar voru virkari sem viðmælendur í fréttum fyrir síðustu áramót samanborið við síðustu sex mánuði. Þetta sýna niðurstöður Fjölmiðlavaktarinnar. Þannig mælast fimm ráðherrar nú með minni hlutdeild í fréttum um þá eða þeirra ráðuneyti, samanborið við tímabilið júní - desember 2007. Geir H. Haarde mælist með mestu hlutdeildina í sínum fréttum en hann var viðmælandi í 48% þeirra frétta sem vísuðu í hann eða hans ráðuneyti. Af einstökum málefnum ræddi Geir H. Haarde oftast um efnahagsmál en alls kom hann fram í 79 fréttum um það málefni. Þá má nefna að Geir H. Haarde mælist mun virkari nú í viðtölum en áður, þ.e. hans hlutdeild sem viðmælandi hefur aukist jafnt og þétt síðastliðin fjögur ár. Með næstmestu virknina mældist Björgvin G. Sigurðsson Viðskiptaráðherra, en Björgvin var í efsta sæti um síðustu áramót. Viðskiptaráðherra mælist nú sem viðmælandi í 43% þeirra frétta sem vísuðu í hann eða hans ráðuneyti. Björgvin kemur mun oftar fram í viðtölum en forveri hans, en virkni Jóns Sigurðssonar fyrrverandi Iðnaðar- og viðskiptaráðherra mældist oftast um 30%. Eins og við er að búast hefur Björgvin oftast rætt um efnahagsmál enda t.d. umfjöllun um krónuna aldrei verið jafn mikil og síðustu mánuði. Þeir ráðherrar sem sýna minnstu sveiflu í virkni á mældu tímabili eru sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, umhverfisráðherra, félagsmálaráðherra, dóms- og kirkjumálaráðherra og fjármálaráðherra . Umfjöllun um þessa ráðherra hefur verið svipuð í magni og áður ef undan er skilin umfjöllun um fjármálaráðherra sem hefur aukist nokkuð mikið síðustu mánuði. Af þessum ráðherrum hefur Einar K. Guðfinnsson mælst í efstu sætunum frá upphafi hans ráðherraferils og Þórunn Sveinbjarnardóttir er að mælast mun sýnilegri í fréttum sem umhverfisráðherra samanborið við forvera hennar. Jóhanna Sigurðardóttir félagsmálaráðherra sýnir mjög svipaða hlutdeild í viðtölum og forveri hennar Magnús Stefánsson gerði. Björn Bjarnason hefur síðustu fjögur árin mælst frekar svipað og lendir oftast í síðustu sætum sem viðmælandi í fréttum. Árni M. Mathiesen mælist með sömu virkni og fyrir áramót en hlutdeild hans sem viðmælandi í þeim fréttum sem að honum snúa hefur þó minnkað síðustu árin. Árni mældist því virkari viðmælandi sem sjávarútvegsráðherra en fjármálaráðherra en þess má geta að það gerði Geir H. Haarde einnig.
Mest lesið Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Innlent „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Innlent Fegursta flugvél Íslands rifin Innlent Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Með umtöluð símtöl og skilaboð á sínu borði Innlent Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Innlent Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Innlent Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Innlent „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Innlent Fleiri fréttir Túlkunaratriði hvað eigi að gera við umsóknina Ruddist inn í íbúð og reyndi að komast inn á upptekið baðherbergið Fegursta flugvél Íslands rifin „Ekkert af þessu er beinlínis að hjálpa okkur“ „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Slaka á kröfum um íbúðastærðir og verslunarrými á jarðhæð Með umtöluð símtöl og skilaboð á sínu borði Kalla eftir ákvörðun um milljarðaáform í Skálafelli Búið að opna fyrir umferð að nýju eftir bilunina Tímamót hjá Kvennaathvarfinu Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Sérstakt viðbragð á Ljósanótt vegna unglingadrykkju Hámark bílastæða við nýbyggingar falli niður Óvirk umferðarljós valda töfum Skuld fyrri eiganda stöðvi ekki skoðun bíls Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Pallborðið: Línurnar lagðar fyrir spennandi þing Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Þorgerður kallaði Rússa á teppið og auknar heimildir lögreglu Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Víðáttumikil lægð fyrir sunnan land Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Þjófnaður í þremur verslunum Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Sjá meira