Alikálfi ekki slátrað þótt Ólafur gangi í flokkinn Steinþór Helgi Arnsteinsson skrifar 19. ágúst 2008 16:45 Jón Magnússon.
Jón Magnússon, formaður Frjálslynda flokksins í Reykjavík, segir að innganga Ólafs F. Magnússonar í Frjálslynda flokkinn verði ekki meðhöndluð með neinum öðrum hætti en venjulega. „Af hverju ætti svo að vera? Maðurinn studdi ekki flokkinn við síðustu kosningar og hefur ekki gert það hingað til," útskýrir Jón. Ólafur gekk úr Sjálfstæðisflokknum árið 2001 og ári seinna bauð hann fram í borginni undir merkjum Frjálslyndra og óháðra (F-listi). Nú stígur Ólafur skrefið til fulls en í dag tilkynnti hann á blaðamannafundi að hann hygðist ganga í Frjálslynda flokkinn og bjóða fram undir merkjum hans í næstu kosningum. „Þegar glataði sonurinn kom heim, þá var slátrað alikálfi, en ég sé ekki nokkra ástæðu til að slátra alikálfi yfir þessum fregnum," segir Jón. Jón telur það gjörsamlega fráleitt ef Ólafur ætlast til þess að geta gengið inn í flokkinn og sjálfkrafa leitt hann í næstu borgarstjórnarkosningum. Jón undrast framgöngu Ólafs. „Er þetta ekki bara í samræmi við manninn yfir höfuð?" spyr Jón og hlær.
Tengdar fréttir Ólafur til liðs við frjálslynda - niðurskurður í vændum hjá borginni Ólafur F. Magnússon borgarstjóri boðaði til blaðamannafundar klukkan 11:00 í Ráðhúsi Reykjavíkur í morgun. Þar tilkynnti Ólafur að hann hygðist ganga í Frjálslynda flokkinn og bjóða fram undir merkjum hans í næstu kosningum. Ólafur sagðist hafa rætt við Guðjón Arnar Kristjánsson formann flokksins sem styður ákvörðun Ólafs. Á fundinum vitnaði Ólafur einnig í minnisblað sem samið var á fjármálaskrifstofu borgarinnar en þar er gert ráð fyrir því að launakostnaður borgarinnar verði minnkaður um átta prósent auk þess sem dregið verði úr yfirvinnu. 19. ágúst 2008 11:39 Mest lesið Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Innlent Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Innlent Banaslys í Skorradalsvatni Innlent Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Innlent Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Innlent „Dapurlegt pólitískt útspil“ Innlent Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri Innlent Safna í sérstakt sjóherlið á Norðurslóðum Erlent Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Innlent Vasaþjófnaður aukist að undanförnu Innlent Fleiri fréttir Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Vasaþjófnaður aukist að undanförnu „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Banaslys í Skorradalsvatni Glæný könnun gæti varpað ljósi á meirihlutamyndun Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Halla fagnaði áttræðum Karli Gústafi Sömdu um stækkun á Fylkisseli Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Ákærður fyrir að eitra fyrir samstarfsfélaga með kannabis Tjáir sig ekki um greiðslur frá Rúv en boðar yfirlýsingu Skipulagt niðurbrot á réttindum launafólks hafi náð til Íslands „Konur upplifa ekki öryggi í íslensku samfélagi“ Sjá meira
Ólafur til liðs við frjálslynda - niðurskurður í vændum hjá borginni Ólafur F. Magnússon borgarstjóri boðaði til blaðamannafundar klukkan 11:00 í Ráðhúsi Reykjavíkur í morgun. Þar tilkynnti Ólafur að hann hygðist ganga í Frjálslynda flokkinn og bjóða fram undir merkjum hans í næstu kosningum. Ólafur sagðist hafa rætt við Guðjón Arnar Kristjánsson formann flokksins sem styður ákvörðun Ólafs. Á fundinum vitnaði Ólafur einnig í minnisblað sem samið var á fjármálaskrifstofu borgarinnar en þar er gert ráð fyrir því að launakostnaður borgarinnar verði minnkaður um átta prósent auk þess sem dregið verði úr yfirvinnu. 19. ágúst 2008 11:39