Innlent

Í 15 mánaða fangelsi fyrir kynferðissamband við nemanda

Hæstiréttur þyngdi í dag dóm yfir karlmanni fyrir kynferðisbrot gegn stúlku sem var nemandi hans. Hlaut hann 15 mánaða óskilorðsbundinn fangelsisdóm í Hæstarétti en í héraðsdómi var dómurinn skilorðsbundinn.

Stúlkan var þrettán ára þegar hún átti í kynferðislegu sambandi við mannin sem var bæði kennari og íþróttaþjálfari stúlkunnar. Stóð sambandið yfir í þrjú ár.

Samkvæmt almennum hegningarlögum skal sá sem hefur samræði eða önnur kynferðismök við barn eða ungmenni, yngra en 18 ára, sem er kjörbarn hans, stjúpbarn, fósturbarn, sambúðarbarn eða ungmenni, sem honum hefur verið trúað fyrir til kennslu eða uppeldis, sæta fangelsi allt að 8 árum og allt að 12 fangelsi sé barn yngra en 16 ára.

Héraðsdómur hafði virt manninum til málsbóta að gagnkvæmt ástarsamband hefði verið á milli hans og stúlkunnar en Hæstiréttur sagði hins vegar að hann ætti sér engar málsbætur og ekki væru forsendur fyrir því að binda refsinguna skilorði. Auk fangelsisdómsins var hann dæmdur til að greiða stúlkunni 500 þúsund krónur í bætur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×