Verðbólgan 11,8 prósent - hefur ekki verið meiri í 18 ár 28. apríl 2008 09:00
Verðbólgan á Íslandi mældist 11,8 prósent í apríl eftir að vísitala neysluverðs hafði hækkað um 3,4 prósent á milli mánaða. Hefur hún ekki verið hærri í nærri átján ár. Verðbólgan var 8,7 prósent í síðasta mánuði en ýmislegt kemur til hækkunar neysluverðsvísitölunni. Fram kemur á vef Hagstofunnar að gengissig íslensku krónunnar undanfarið hafi skilað sér mjög hratt út í verðlagið. Hækkaði verð á innfluttum vörum um 6,2 prósent í mánuðinum og hafði það áhrif til hækkunar á vísitölunni um 2,1 prósent. Kostnaður vegna reksturs eigin bifreiðar jókst um 7,1 prósent, þar af hækkaði verð á nýjum bílum um 11 prósent og á bensíni og olíum um 5,2 prósent. Verð á mat og drykkjarvöru hækkaði um 6,4 prósent en þar af hækkaði verð á mjólk og mjólkurvörum um 10,2 prósent. Sem fyrr segir hefur vísitala neysluverðs hækkað um 11,8 prósent síðastliðna tólf mánuði sem en verðbólga án húsnæðis er 10,6 prósent. Ef horft er til síðastliðinna þriggja mánaða hefur vísitala neysluverðs hækkað um 6,4 prósent sem jafngildir 28 prósenta verðbólgu á ári . Mánaðarbreyting vísitölu neysluverðs hefur ekki verið meiri frá júlí 1988 en þá hækkaði hún um 3,5 prósent og fyrir vísitöluna án húsnæðis frá janúar 1985 en þá hækkaði hún um 4,8 prósent. Miðað við tólf mánaða breytingu vísitölunnar hefur verðbólgan ekki mælst meiri síðan í september 1990. Þá reyndist hún tólf prósent. Verðbólgan nú er mun meiri en stóru viðskiptabankarnir höfðu spáð. Kaupþing hafði spáð tíu prósenta verðbólgu í apríl, Landsbankinn 10,1 prósents verðbólgu og Glitnir 10,2.
Mest lesið Ekki lengur vafi á því hver hinn látni er Innlent Flaug hvorki með gömlu né nýju Air Force One Erlent Yfirlýsing Landskjörstjórnar: „Fullyrðing Morgunblaðsins er alfarið röng“ Innlent Hóteláform Hreiðars strand vegna vegleysu Innlent Ungir Miðflokksmenn vildu ekki taka þátt í Gleðigöngunni Innlent Vaktin: Almyrkvi á sólu á Íslandi Innlent Dregur enn frekar úr líkum á samningi með skaðabótakröfu Erlent Fylgdust með rússneskum njósnara gefa útsendara gjöf Erlent Kæra varðhald þriðja mannsins til Landsréttar Innlent Gæsluvarðhalds krafist yfir þriðja manninum Innlent Fleiri fréttir Umbúðirnar gallaðar og hakkið fer aftur í bakka Gera ráð fyrir sjö daga aðalmeðferð í Reykholtsmálinu Tók konu kyrkingartaki nóttina eftir dóm og verður lengur í haldi Segir efnahagsmálin og verðbólguna að þróast í rétta átt Kristrún vísar ásökunum um sinnuleysi á bug Ekki lengur vafi á því hver hinn látni er Yfirlýsing Landskjörstjórnar: „Fullyrðing Morgunblaðsins er alfarið röng“ Vill að vinnu við gerð áhættumats verði flýtt Leita óþekkts árásarmanns á Þjóðhátíð Kæra varðhald þriðja mannsins til Landsréttar Vaktin: Almyrkvi á sólu á Íslandi Þriðji maðurinn úrskurðaður í gæsluvarðhald Líkur á rigningu í Reykjavík þegar almyrkvinn gengur yfir Gæsluvarðhalds krafist yfir þriðja manninum Björgunarsveitir sinntu tveimur slösuðum ferðamönnum Hóteláform Hreiðars strand vegna vegleysu ,,Þetta eru kosningaherferðarfundir Kristrúnar Frostadóttur fyrir Já til að sjá'' Fyrir fólk sem búi á almyrkvaslóðinni sé nóg að „vera úti í garði og upplifa allt“ Ungir Miðflokksmenn vildu ekki taka þátt í Gleðigöngunni „Við sem samfélag þurfum að standa keik á móti þessu“ Aðallega „karlar að drepa aðra karla“ „Einfaldlega ók bifreið frá punkti A á punkt B“ Í gæsluvarðhaldi en segist einungis hafa verið bílstjóri Billy Long kominn á klakann Helga Lára Haarde aðstoðar Hildi Fólksfjöldi á Hellissandi tífaldast Leita ferðamannanna sem skildu fimm ára son sinn eftir í bíl Pysjutímabilið formlega hafið Bílstjóri ákærður fyrir að nauðga fatlaðri konu Bein útsending: Umdeildur fundur Baudenbacher Sjá meira