Innlent

Hafa miklar áhyggjur af vinnustöðvunum flugumferðarstjóra

MYND/Heiða

Samtök ferðaþjónustunnar lýsa yfir miklum áhyggjum vegna fyrirhugaðra vinnustöðvana flugumferðarstjóra sem boðaðar hafa verið frá og með 27. júní til 20. júlí.

Í tilkynningu frá samtökunum segir að aðgerðirnar muni raska flugi umtalsvert, bæði innanlands sem utan með ófyrirsjáanlegum afleiðingum. Ferðaþjónustan sé mjög viðkvæm fyrir slíkum truflunum og þær séu slæmar fyrir ímynd og orðspor Íslands sem ferðamannalands.

Þá segja samtökin að ferðamenn forðist almennt svæði þar sem verkföll og vinnustöðvanir eru fyrirhugaðar. Þetta sé alvarleg staða fyrir íslenska ferðaþjónustu á sama tíma og rekstrarumhverfi fyrirtækjanna hafi stórversnað vegna olíuverðshækkana og erfiðs efnahagsástands hérlendis sem erlendis. Hvetja Samtök ferðaþjónustunnar samningsaðila til að gera sitt ítrasta til að ná samningum áður en í óefni er komið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×