Innlent

Eldur í gistihúsi á Reyðarfirði

Lögreglu var tilkynnt um að eldur væri laus í kaffi og gistiheimilinu Hjá Marlín á Reyðarfirði klukkan fjögur í nótt og að slökkvilið Fjarðabyggðar væri á leið á staðinn.

Þrír gestir voru í húsinu og vöknuðu þeir við brunaviðvörunarkerfi sem fór í gang, og komust af sjálfsdáðum út. Slökkvistörfum lauk laust eftir klukkan fimm..Ljóst er að miklar skemmdir eru á húsinu af völdum elds, hita, reyks og vatns. Rannsókn lögreglu stendur yfir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×