Verja þarf stöðu ríkissjóðs og útflutningsgreina 21. apríl 2008 16:59 MYND/GVA
Verja þarf stöðu ríkissjóðs og stöðu útflutningsgreinanna og auka erlenda fjárfestingu í landinu til þess að bæta efnahagshorfurnar. Þetta er mat fjármálaráðherra sem tók þátt í utandagskrárumræðu um nýja þjóðhagsspá fjármálaráðuneytisins á Alþingi í dag. Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstri - grænna, var upphafsmaður utandagskrárumræðunnar og vísaði til orða forsætisráðherra á fundi Samtaka atvinnulífsins fyrir helgi. Þar hefði ráðherra sagt að of mikil opinber umræða væri óheppileg og gæti skapað óraunhæfar væntingar. Þá hefði fjármálaráðherra sagt að menn mættu ekki tala of mikið um þessa hluti. Nýjasti sökudólgurinn í efnhagsumræðunni væru ekki erlendir vogunarsjóðir eða erlendir fjölmiðlar heldur umræðan sjálf. Steingrímur benti á að fjármálaráðuneytið hefði í síðustu viku sent frá sér þjóðhagsspá og það hefði vakið athygli að ráðuneytið væri minna svartsýnt um efnahagshorfur í öllum meginatrinum en Seðlabankinn sem hefði skömmu áður birt sína spá um þróun efnahagsmála. Spurði Steingrímur meðal annars hvort ráðherra teldi koma til greina að endurvekja Þjóðhagsstofnun sem veitt hefði vandaða þjóðhagsspá og jafnframt hvort ráðherra teldi að þjóðhagshorfurnar væru með þeim hætti að menn gætu sætt sig við þær. Munur á spám þarf ekki að vera óeðlilegur Árni M. Mathiesen fjármálaráðherra sagði rétt að munur væri á spá fjármálaráðuneytisins og Seðlabankans en það þyrfti ekki að vera neitt óeðlilegt við það. Stofnanirnar byggðu á mismunandi þjóðhagslíkunum og það væri algjör óþarfi að gera það tortryggilegt. Sagðist ráðherra telja að það væri ekkert betra að hverfa aftur til Þjóðhagsstofnunar því nú kæmu mun fleiri aðilar að spám og upplýsingar í efnahagsmálum væru meiri nú en í tíð Þjóðhagsstofnunar. Ráðherra sagði horfur í efnahagsmálum alltaf að breytast og sagði um þá spurningu hvort horfurnar væru ásættanlegar að menn yrðu að vinna að því að þær bötnuðu. Það yrði gert með tvennu, að verja stöðu ríkissjóðs og sömuleiðis stöðu útflutningsgreinanna. Þá þyrfti frekari erlendar fjárfestingar inn í landið. Sagði Árni að þá tortryggni í umræðunni, sem forsætisráðherra hefði varað við í ræðu sinni á fundi Samtaka atvinnulífsins, væri einmitt að finna í orðum formanns Vinstri - grænna. Hún væri síst til þess fallinn að losa þjóðina úr þeirri stöðu sem vissulega væri uppi. Ekki ástæða til að endurskoða fjárlög Fleiri þingmenn tóku til máls í umræðunni, þar á meðal Gunnar Svavarsson, formaður fjárlaganefndar. Hann benti á að þónokkrar breytingar hefðu orðið á þjóðhagsspá fjármálaráðuneytisins frá því í fyrrahaust og fram undan væri samdráttur í efnahagslífinu meðal annars vegna samdráttar í einkaneyslu og í byggingargeiranum. Sagðist hann þóekki telja ástæðu til þess að endurskoða fjárlög þessa árs miðað við þriggja mánaða rekstur ríkisins en menn yrðu að horfa á hverja spá fyrir sig. Ef menn þyrftu að endurskoða fjárlögin myndi enginn víkja sér undan því.
Mest lesið Ekki lengur vafi á því hver hinn látni er Innlent Líkfundur við Austurbæjarskóla Innlent Umbúðirnar gallaðar og hakkið fer aftur í bakka Innlent Vaktin: Almyrkvi á sólu á Íslandi Innlent Yfirlýsing Landskjörstjórnar: „Fullyrðing Morgunblaðsins er alfarið röng“ Innlent Hafa borið kennsl á hinn látna Innlent Flaug hvorki með gömlu né nýju Air Force One Erlent Hóteláform Hreiðars strand vegna vegleysu Innlent Hólmbert bjargaði manni úr bíl sem stóð í ljósum logum í Kóreu Innlent Ungir Miðflokksmenn vildu ekki taka þátt í Gleðigöngunni Innlent Fleiri fréttir Fjórfalt fleiri lögreglumenn vakta Vestfirði Skemmdir á nýrri vatnsleiðslu til Eyja Leita svara við aldargamalli ráðgátu sólarinnar Gætu þurft að skila skyndibitaumbúðum Gripinn með stolið kreditkort og handtekinn Hafa borið kennsl á hinn látna Einn um borð þegar eldur kviknaði í fiskibát Kveikt á götulýsingu í sólmyrkva á stofnbrautum Líkfundur við Austurbæjarskóla Hólmbert bjargaði manni úr bíl sem stóð í ljósum logum í Kóreu Umbúðirnar gallaðar og hakkið fer aftur í bakka Gera ráð fyrir óvenjulangri aðalmeðferð í Reykholtsmálinu Tók konu kyrkingartaki nóttina eftir dóm og verður lengur í haldi Segir efnahagsmálin og verðbólguna að þróast í rétta átt Kristrún vísar ásökunum um sinnuleysi á bug Ekki lengur vafi á því hver hinn látni er Yfirlýsing Landskjörstjórnar: „Fullyrðing Morgunblaðsins er alfarið röng“ Vill að vinnu við gerð áhættumats verði flýtt Leita óþekkts árásarmanns á Þjóðhátíð Kæra varðhald þriðja mannsins til Landsréttar Vaktin: Almyrkvi á sólu á Íslandi Þriðji maðurinn úrskurðaður í gæsluvarðhald Líkur á rigningu í Reykjavík þegar almyrkvinn gengur yfir Gæsluvarðhalds krafist yfir þriðja manninum Björgunarsveitir sinntu tveimur slösuðum ferðamönnum Hóteláform Hreiðars strand vegna vegleysu ,,Þetta eru kosningaherferðarfundir Kristrúnar Frostadóttur fyrir Já til að sjá'' Fyrir fólk sem búi á almyrkvaslóðinni sé nóg að „vera úti í garði og upplifa allt“ Ungir Miðflokksmenn vildu ekki taka þátt í Gleðigöngunni „Við sem samfélag þurfum að standa keik á móti þessu“ Sjá meira