Segir lítið kjöt á beinum aðgerða ríkisstjórnarinnar 14. nóvember 2008 16:51 Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstri grænna.
Aðgerðir ríkisstjórninnar sem kynntar voru fyrr í dag eru skref í rétta átt, að mati Steingríms J. Sigfússonar formanns Vinstri grænna. ,,Aftur á móti sló mig hversu tillögurnar eru veiklulegar og hversu lítið kjöt er á beinum." Ríkisstjórnin mun leggja fram sérstakt frumvarp til þess að létta greiðslubyrði einstaklinga með verðtryggð lán ásamt því að endurskoða lög um dráttarvexti. Þetta kom fram á blaðamannafundi sem Geir H. Haarde, forsætisráðherra, og Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, utanríkisráðherra, efndu til í dag. Þar var farið yfir margháttaðar aðgerðir sem snúa að heimilunum í landinu í núverandi þrengingum. ,,Vandinn er núna. Þannig að ég get ekki gefið þessa mjög háa einkunn. Í besta falli get ég sagt að þetta sé viðleitni en hún er veikluleg," segir Steingrímur. Steingrímur segist ekki geta lesið annað út úr svörum forystumanna ríkisstjórnarinnar á blaðamannafundinum að stjórnin sé að undirbúa uppgjöf í Icesave-deilunni þvert á fyrri heitstrengingar sínar. ,,Ég hef rosalega áhyggjur og ég er hræddur um að við töpum allri samningsstöðu með því að skrifa upp á þetta núna því Icesave-reikningapakkinn er pólitískt og siðferðilega eitraður." Aðspurður hvort að ríkisstjórnin eigi annarra kosta völ viðurkennir Steingrímur að staðan sé vissulega þröng. ,,Aftur á móti höfum við gagnrýnt ríkisstjórnina fyrir að hafa ekki fleiri spil á hendi og fleiri úrræði. Þegar við lögðumst gegn umsókninni til IMF sögðum við meðal annars að það væri hættulegt að setja allt okkar traust á þá einu leið vitandi ekki einu sinni hverjir skilmálarnir yrðu og eiga þá enga aðra möguleika sem reyndist síðan raunin."
Tengdar fréttir Greiðslubyrði af verðtryggðum lánum lækkuð með vísitölu Ríkisstjórnin mun leggja fram sérstakt frumvarp til þess að létta greiðslubyrði einstaklinga með verðtryggð lán ásamt því að endurskoða lög um dráttarvexti. Þá koma Bretar ekki hingað til loftrýmiseftirlits í desember. 14. nóvember 2008 16:25 Mest lesið Maðurinn fannst látinn í gilinu Innlent Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Innlent Ógn á galakvöldverði og forsetinn fluttur á brott Erlent Íslendingur lést í fallhlífarslysi í Danmörku Innlent Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Innlent Inga kemur Ingó til varnar Innlent Fallhlífin byrjaði að snúast eftir opnun Innlent Íslendingurinn var nemandi í lýðháskóla Innlent Ungi Íslendingurinn var nemandi í fallhlífaskóla Innlent Bóndakonan á Bakkakoti er látin Innlent Fleiri fréttir „Skemmtilegra ef við hefðum lent á hinu árinu“ Sakar framkvæmdastjóra Landspítala um ósannindi Yfirgefa húsið fyrir fullt og allt á fimmtudag „Við verðum að fá fólk heim aftur“ „Komið þá með allt það sem gerðist síðast“ Fyrstu íslensku GPS-heiðlóurnar komnar heim Harmleikurinn á Edition og umdeild bifreiðarstöð Óvenjulegu tímabili að ljúka Jón Pétur segir enga feðraveldisrembu í „árþúsunda náttúruvali“ Heimilt að nota rafrænt eftirlit í nálgunarbannsmálum „Það þarf að taka í handbremsuna strax“ „Var þetta einhver skets?“ Inga kemur Ingó til varnar Íbúar funda aftur um stöðu Kaffistofunnar Konan ákærð fyrir manndráp á Edition Eden Mining vill ekki sjá málið fyrir dómstólum Ísland kunni að kreista veski ríkra ferðamanna Íslendingurinn var nemandi í lýðháskóla „Mér finnst þetta ákaflega dapurleg framganga“ Sjö þúsund störf gætu verið unnin af gervigreind Vill hætta veiðum en græna ljós Bjarna gildi Hitafundur í utanríkismálanefnd og ráðherra boðar breytingar á hvalveiðilögum Inga vill ekki setja „tugi milljarða í loftslagsmál“ Beitir sér ekki sérstaklega fyrir því að spurningunni verði breytt Stjórnarþingmaður segir Hafró í bullandi pólitík Handteknu hafa komið áður við sögu hjá lögreglu Bein útsending: Kristrún svarar spurningum um þjóðaratkvæðagreiðslu Tveir handteknir í tengslum við stórfellda líkamsárás Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Krónu kastað fyrir aurinn í fjármögnun skóla Sjá meira
Greiðslubyrði af verðtryggðum lánum lækkuð með vísitölu Ríkisstjórnin mun leggja fram sérstakt frumvarp til þess að létta greiðslubyrði einstaklinga með verðtryggð lán ásamt því að endurskoða lög um dráttarvexti. Þá koma Bretar ekki hingað til loftrýmiseftirlits í desember. 14. nóvember 2008 16:25