Ungir jafnaðarmenn hyggja á mótmæli við meirihlutaskipti Jón Hákon Halldórsson skrifar 17. ágúst 2008 16:52 Anna Pála Sverrisdóttir, formaður Ungra jafnaðarmanna.
Anna Pála Sverrisdóttir, formaður Ungra jafnaðarmanna, segir það vel geta farið svo að hún muni standa að mótmælum í Ráðhúsinu næstkomandi fimmtudag, þegar nýr meirihluti tekur við í borgarstjórn. „Það getur meira en vel verið, án þess að ég ætli að fara að upplýsa um það núna hvernig það verði gert," segir Anna Pála í samtali við Vísi. Anna Pála stóð ásamt fjölda annarra að mótmælum í Ráðhúsinu þegar meirihluti F-lista og sjálfstæðismanna tók við völdum. Þá mættu hundruð Reykvíkinga til þess að láta í ljós óánægju sína. Anna Pála segist allt eins eiga von á því að jafn margir taki þátt í mótmælum núna. „Það eru í það minnsta jafn margir reiðir. Og fólk þarf að passa sig á því að láta það í ljós þegar það er ekki sátt. Það er aðhaldið sem við höfum fyrir utan kosningar á fjögurra ára fresti," segir Anna Pála. Anna Pála vísar í ályktun sem Hallveig, félag ungra jafnaðarmanna í Reykjavík, samþykkti nýlega þar sem stungið er upp á því að þingmenn setji bráðabirgðalög um kosningar. „Ég er ekki endilega að tala um að breyta sveitastjórnarlögum þannig að lítil sveitafélög úti á landi geti efnt til kosninga á hálftíma fresti. En aðstæður í Reykjavík kalla á bráðabirgðalög þannig að hægt verði að kjósa núna," segir Anna Pála. Anna Pála segir það kaldhæðnislegt að yfirskrift yfirlýsingar sjálfstæðismanna og framsóknarmanna sé „Höldum áfram" í ljósi þess hvernig saga þessa kjörtímabils hafi verið.
Mest lesið Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Innlent Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Innlent Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Innlent „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Innlent Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Innlent Með umtöluð símtöl og skilaboð á sínu borði Innlent Tímamót hjá Kvennaathvarfinu Innlent Skuld fyrri eiganda stöðvi ekki skoðun bíls Innlent Fleiri fréttir „Ekkert af þessu er beinlínis að hjálpa okkur“ „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Slaka á kröfum um íbúðastærðir og verslunarrými á jarðhæð Með umtöluð símtöl og skilaboð á sínu borði Kalla eftir ákvörðun um milljarðaáform í Skálafelli Loka fyrir umferð vegna bilunar í umferðarljósum Tímamót hjá Kvennaathvarfinu Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Sérstakt viðbragð á Ljósanótt vegna unglingadrykkju Hámark bílastæða við nýbyggingar falli niður Óvirk umferðarljós valda töfum Skuld fyrri eiganda stöðvi ekki skoðun bíls Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Pallborðið: Línurnar lagðar fyrir spennandi þing Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Þorgerður kallaði Rússa á teppið og auknar heimildir lögreglu Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Víðáttumikil lægð fyrir sunnan land Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Þjófnaður í þremur verslunum Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Sjá meira