Innlent

Evróputal er flótti frá raunveruleikanum

Björn Björnsson, dómsmálaráðherra.
Björn Björnsson, dómsmálaráðherra.

,,Mér finnst þetta Evróputal vera flótti frá raunveruleikanum," sagði Björn Bjarnason, dómsmálaráðherra, í Kastljósi í kvöld.

Björn telur að stjórnvöld standi frammi fyrir brýnni viðfangsefnum en vangaveltum um hugsanlega aðild að Evrópusambandinu. Þá ítrekaði hann að það væri ekki stefna ríkisstjórnarnar að sækja um aðild að Evrópusambandinu.

Í skoðanakönnun sem Fréttablaðið birti í dag kemur fram að nú segjast 68,8 prósent vilja að Ísland sæki um aðild að Evrópusambandinu. Því mótfallin eru 31,3 prósent. Stuðningur við aðildarumsókn hefur aukist töluvert frá því í febrúar, þegar 55,1 prósent sagðist styðja aðildarumsókn.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×