Árni Johnsen ósáttur við að vera kallaður stórslys Jón Hákon Halldórsson skrifar 25. júlí 2008 12:01 Árni Johnsen íhugar málshöfðun gegn Agnesi Bragadóttur.
Það ræðst á mánudaginn næstkomandi hvort Árni Johnsen muni stefna Agnesi Bragadóttur vegna ummæla hennar í þættinum „Í bítið á Bylgjunni" þann 9. júlí síðastliðinn. Agnes var mjög ómyrk í máli þegar talið barst að grein sem Árni Johnsen hafði skrifað og snerist öðru fremur um íslenskt réttarkerfi og Baugsmálið. „Hann er dæmdur glæpamaður. Hann var mútuþægur, dæmdur fyrir umboðssvik í tveggja ára fangelsi og svo stígur hann fram, maðurinn sem aldrei iðraðist, hafði aldrei gert neitt rangt, upphefur sjálfan sig ..." sagði Agnes. Hún bætti svo við með því að segja að Árni væri hálfgert stórslys og ætti að hafa vit á því að halda kjafti. Einar Hugi Bjarnason, lögmaður Árna, segist hafa kallað eftir upptöku af þættinum. „Við munum gefa okkur tíma yfir helgina til að íhuga hvort það sé ástæða reyna að fá þessum ummælum hnekkt og þau dæmd ómerk. Einar Hugi segist búast við að ef farið verði í mál verði jafnframt sett fram bótakrafa. „Það er mismunandi hve háar bótakröfur hafa verið, en þær voru 20 milljónir í Bubbamálinu," segir Einar Hugi. Einar bendir þó á að dæmdar bætur hafi ekki verið í samræmi við bótakröfur. Í nýlegum dómum hafi þó verið dæmdar bætur upp að einni og hálfri milljón. Bubbi fékk um 700 þúsund vegna ummælanna „Bubbi fallinn", sem birtust í tímaritinu Hér og nú.Smelltu hér til að hlusta á ummæli Agnesar
Mest lesið Sunneva Einars áfram langtekjuhæsti áhrifavaldurinn Lífið Tekjuhæstu listamennirnir árið 2025 Lífið Stórglæsilegt Sigvaldahús á sölu Lífið Nicole er fyrir norðan Lífið Hemma Gunn-stytta og heitur pottur í 192 milljóna króna raðhúsi Lífið Sannkallað stjörnubrúðkaup Katrínar Tönju og Brooks Lífið Lofar að minnast Panettiere ávallt af virðingu Lífið Galvaskt gelludjamm hjá Guggu og guggunum Lífið „Ógleymanlegt söngævintýri“ með Nicole Kidman Lífið Hvað veistu um... frjálsar íþróttir? Lífið Fleiri fréttir Frank Beard er látinn 77 ára að aldri „Ég vildi verða þrítug í Pucci“ Sannkallað stjörnubrúðkaup Katrínar Tönju og Brooks Tekjuhæstu listamennirnir árið 2025 Sunneva Einars áfram langtekjuhæsti áhrifavaldurinn „Ógleymanlegt söngævintýri“ með Nicole Kidman Prjóna á klúbbnum án þess að prjóna yfir sig Hemma Gunn-stytta og heitur pottur í 192 milljóna króna raðhúsi Verjendur Davis segja ekkert að marka skjólstæðing sinn Lofar að minnast Panettiere ávallt af virðingu Stórglæsilegt Sigvaldahús á sölu Leikkonan var úrskurðuð látin á vettvangi Hvað veistu um... frjálsar íþróttir? Galvaskt gelludjamm hjá Guggu og guggunum Nicole er fyrir norðan Egill Heiðar og Kittý selja Garðabæjarslotið Helstu samsæriskenningarnar um Evrópusambandið „Ein miðaldra kona að tala um að hún hefði viljað mæta“ Barnalán hjá Brynju Dan Herra og frú Crivello hamingjusöm hjón Svana á tímamótum og selur slotið Auðunn tilkynnir nýja kærustu Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Leikkonan Hayden Panettiere er látin Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Þórdís Elva er gengin út Efna til söfnunar í minningu Hennings Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Hunter Schafer alsæl eftir Íslandsför Sjá meira