Skjólbelti við Ylströnd algjörlega til skammar Steinþór Helgi Arnsteinsson skrifar 23. júní 2008 15:03 Óttarr Hrafnkelsson, forstöðumaður Ylstrandarinnar, við skjólvegginn lágvaxna. Mynd/Steinþór Helgi
Lítil uppbyggingin hefur verið við Ylströndina í Nauthólsvík frá því að hún opnaði sumarið 2000. Andvaraleysi borgarstjórnar í málefnum svæðisins endurspeglast líklegast best í sérstöku skjólbelti sem gróðursett var fyrir ofan ströndina og heldur hvorki vatni né vindi eins og kom fram í fréttum Stöðvar 2 í gær. Skjólbeltið teygir sig rétt um fáeina sentímetra upp í loftið og líklegt þykir að það taki gróðurinn um tíu ár að vaxa upp í þá hæð að hann geti veitt eitthvert skjól. Einfalt að bæta aðstöðunaHér sést hversu veiklulega skjólbeltið við Ylströndina í Nauthólsvík lítur út. Forstöðurmaur svæðsins vill frekar sjá þykkara gróðurbelti meðfram öllu svæðinu.Óttarr Hrafnkelsson, forstöðumaður Ylstrandarinnar, er langþreyttur á ástandinu og segir núverandi lausn óviðunandi. Ekki eingöngu sé langt að bíða þar til skjólgróðurveggurinn taki á sig nytsamlega mynd heldur verða áhrif hans væntanlega ekki teljandi þó hann gæti reynst ágætis prýði. „Ég hefði viljað sjá meðfram allri ströndinni ekki eina röð, heldur þrjár raðir af trjám. Við erum ekkert að tala um neinn brjálæðislega mikinn gróður eða vesen. Þetta er hrikalega einföld aðgerð og það er stofnun hjá borginni sem sérhæfir sig í gróðri. Pólitíkusarnir þurfa einfaldlega að veita fé í þetta þannig hægt verði að halda áfram uppbyggingu á svæðinu," útskýrir Óttarr. Frekari uppbygging verður að eiga sér staðRétt við Ylströndina má sjá þennan trjágróður sem ber ekki mikið yfir sér en veitir hins vegar talsvert skjól. Eitthvað þessu líkt væri hægt að koma upp við Ylströndina.Óttarr segir að menn hafi hlaupið frá hálfkláruðu verki þegar Ylströndin var opnuð og að ekkert hafi verið gert síðan þá. „Peningurinn fór svolítið mikið í þjónustubygginguna sem er frekar fáránlegt; að eyða fyrst peningum í þjónustubyggingu fyrir útvistarsvæði í stað þess að byggja fyrst upp útivistarsvæðið og síðan þjónustubygginguna." Að mati Óttars verður fyrst og fremst að líta á Nauthólsvíkursvæðið sem útivistarsvæði en ekki eingöngu sólarströnd. „Við erum með fullan mannskap og opið hér á ströndinni í hundrað daga á hverju sumri og svo fáum við kannski bara fimm til tíu daga þar sem er Benidorm-veður.Við viljum því leggja áherslu á að að þú getir komið hingað þó það sé ekki sól og 25 stiga hiti. Þess vegna finnst okkur vanta leiktæki og að gera svæðið meira aðlaðandi og notendavænna. Það vantar að klára hugmyndina á bakvið Ylströndina."
Tengdar fréttir Baðstrandargestir leita skjóls undir rofabörðum Enn er áratugur hið minnsta þar til skjól skapast við eina baðstrandarsvæði Reykvíkinga - Ylströndina í Nauthólsvík. Umsjónarmaður svæðisins segir dapurt að borgaryfirvöld hafi ekki hugsað fyrir skjólmyndun. Barátta hans fyrir skjóli hefur skilað gróðurbelti sem nú teygir sig fáeina sentímetra í loft upp. 22. júní 2008 19:40 Mest lesið Fegursta flugvél Íslands rifin Innlent Óttast að yfir áttatíu hafi farist Erlent Túlkunaratriði hvað eigi að gera við umsóknina Innlent Segir Repúblikönum að tala meira um afrek hans Erlent „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Innlent Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Ásakanir á víxl milli leyniþjónusta eftir skothríð í Kænugarði Erlent „Ekkert af þessu er beinlínis að hjálpa okkur“ Innlent Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Innlent Ruddist inn í íbúð og reyndi að komast inn á upptekið baðherbergið Innlent Fleiri fréttir Túlkunaratriði hvað eigi að gera við umsóknina Ruddist inn í íbúð og reyndi að komast inn á upptekið baðherbergið Fegursta flugvél Íslands rifin „Ekkert af þessu er beinlínis að hjálpa okkur“ „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Slaka á kröfum um íbúðastærðir og verslunarrými á jarðhæð Með umtöluð símtöl og skilaboð á sínu borði Kalla eftir ákvörðun um milljarðaáform í Skálafelli Búið að opna fyrir umferð að nýju eftir bilunina Tímamót hjá Kvennaathvarfinu Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Sérstakt viðbragð á Ljósanótt vegna unglingadrykkju Hámark bílastæða við nýbyggingar falli niður Óvirk umferðarljós valda töfum Skuld fyrri eiganda stöðvi ekki skoðun bíls Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Pallborðið: Línurnar lagðar fyrir spennandi þing Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Þorgerður kallaði Rússa á teppið og auknar heimildir lögreglu Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Víðáttumikil lægð fyrir sunnan land Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Þjófnaður í þremur verslunum Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Sjá meira
Baðstrandargestir leita skjóls undir rofabörðum Enn er áratugur hið minnsta þar til skjól skapast við eina baðstrandarsvæði Reykvíkinga - Ylströndina í Nauthólsvík. Umsjónarmaður svæðisins segir dapurt að borgaryfirvöld hafi ekki hugsað fyrir skjólmyndun. Barátta hans fyrir skjóli hefur skilað gróðurbelti sem nú teygir sig fáeina sentímetra í loft upp. 22. júní 2008 19:40