Heimili formanns ungra frjálslyndra grýtt með eggjum Breki Logason skrifar 15. maí 2008 11:09 Viðar Helgi Guðjohnsen
Viðar Helgi Guðjohnsen formaður ungra frjálslyndra var í fasta svefni á heimili sínu um miðja nótt í vikunni þegar eggjabakki fékk að fljúga í framhliðina á húsinu. Viðar rumskaði ekki en bróðir hans vaknaði við eggin og náði bílnúmerinu hjá kösturunum. Viðar hefur átt í útistöðum við félag Anti-rasista undanfarið. „Ég veit ekkert hvort þeir stóðu að baki þessu og efast reyndar um að svo sé, miðað við það sem hann hefur sagt," segir Viðar og á þar við Dane Magnússon formann Anti-rasista félagsins á Íslandi. Viðar sem heldur úti bloggsíðu hefur átt í deilum við Dane og félaga og ætlaði meira að segja að kæra þá fyrir að birta lygar um sig og samflokksmenn sína á heimasíðu félagsins. „Þeir vissu upp á sig skömmina og tóku þetta út. Þeir hafa samt ekki enn beðið mig afsökunar," segir Viðar en á síðu Anti-rasista var því m.a haldið fram að Viðar væri meðlimur í bresku nýnasistasamtökunum Combat 18 sem virðast vera að ryðja sér til rúms hér á landi. Viðar þvertekur fyrir að tilheyra nýnasistasamtökunum og hefur ekki hugmynd um hverjir það eru sem standa að baki íslensku rasistasíðunni skapari.com en þar hefur komið fram að Combat 18 sé komið til Íslands. „Ég hef ekki hugmynd um það, enda umgengst ég ekki svona fólk." Viðar segir að eggin séu lífræn og að mestu leyti farin af húsinu. Hann er því lítið að stressa sig yfir því hverjir stóðu að baki árásinni. „Mig grunar hinsvegar að þetta séu sömu aðilar og dreifðu hatursbréfum um mig í nágrannahúsin, þetta gæti tengst því."
Mest lesið Kýld niður fjallið og hafi svo horft á formanninn ljúga í fjölmiðlum Innlent Missti besta vin sinn á Krýsuvíkurvegi og son í umferðarslysi Innlent Bilun hjá Teya olli löngum röðum Innlent Sjö fluttir á slysadeild eftir að bíl var ekið á tvo ljósastaura Innlent Vara við manni sem hafi óskað eftir persónuupplýsingum nemenda Innlent Myndband af banaslysinu í töluverðri dreifingu Innlent Segir ljóst að málið verði Lindsay Clancy dýrkeypt Erlent Áfall og tjón að missa skyndilega teljarann Innlent Lögreglan í Kaupmannahöfn stendur í ströngu Erlent „Ég hafna þeirri fullyrðingu alfarið“ Innlent Fleiri fréttir „Það þarf að setja það í algjöran forgang að börn mæti í skólann“ Narsarsuaq-flugvöllur að öðlast framhaldslíf Posarnir komnir í lag á ný Þyrlan kölluð út vegna slyss við Sólheimajökul Áfall og tjón að missa skyndilega teljarann Vara við manni sem hafi óskað eftir persónuupplýsingum nemenda Óþarft að fara til Reykjavíkur til að hlaupa Bilun hjá Teya olli löngum röðum Missti besta vin sinn á Krýsuvíkurvegi og son í umferðarslysi „Ég hafna þeirri fullyrðingu alfarið“ „Búningadjamm“ á Þjóðminjasafninu í dag Elti blóðugan brotaþola inn á lögreglustöðina Ólga innan SÁÁ og upprisa AfD Tveir handteknir í sérsveitaraðgerð á Akureyri Sjö fluttir á slysadeild eftir að bíl var ekið á tvo ljósastaura Hátt í áttatíu eftirskjálftar Handteknir eftir líkamsárás Kýld niður fjallið og hafi svo horft á formanninn ljúga í fjölmiðlum Jarðskjálfti í Brennisteinsfjöllum Rafmagnslaust var í Reykjavík og Mosfellsbæ Enginn andvígur hvalveiðum Banna innfluttar dýraafurðir frá Brasilíu Skordýr í súpu skólabarna Sérsveitaraðgerð við heimahús á Akureyri Anna Lilja og Sæunn sýslumenn tímabundið Finnbjörn býður sig ekki aftur fram til forseta ASÍ Telja þjóðaratkvæðagreiðsluna hafa styrkt Samfylkinguna Hugsi yfir framlagi Kristrúnar Fella niður gatnagerðargjald vegna bílakjallara Næstum allar ábendingarnar um Áfram Ísland Sjá meira