Ríkisstjórnin samþykkir frumvarp um aðgerðir gegn atvinnuleysi 31. október 2008 13:36
Ríkisstjórnin samþykkti í morgun frumvarp Jóhönnu Sigurðardóttur félagsmálaráðherra um sérstakar aðgerðir til þess að sporna við atvinnuleysi. Í því felst meðal annars að skerðing atvinnuleysisbóta vegna hlutastarfs verður felld niður og þá verður tímabilið sem tekjutengdar atvinnuleysisbætur nær yfir lengt hlutfallslega þegar launafólk sækir um atvinnuleysisibætur samhliða minnkuðu starfshlutfalli. Ef starfshlutfall minnkar úr 100 prósentum í 50 lengist tímabil tekjutengdra atvinnuleysisbóta úr þremur mánuðum í sex. „Í þriðja lagi er frumvarpinu ætlað að vernda réttindi launafólks hjá Ábyrgðasjóði launa. Verði fyrirtæki gjaldþrota munu greiðslur úr Ábyrgðasjóði launa miðast við tekjur samkvæmt því starfshlutfalli sem viðkomandi gegndi áður en til samdráttar kom í fyrirtækinu á tímabilinu 1. október sl. til og með 31. janúar 2009 og að fram hafi komið krafa um gjaldþrotaskipti á búi atvinnurekanda innan tólf mánaða frá þeim tíma sem starfshlutfall starfsmanns var lækkað,“ segir á vef félagsmálaráðuneytisins. Enn fremur er það ítrekað að foreldrar á vinnumarkaði halda áunnum rétti sínum til greiðslna samkvæmt lögum um fæðingar- og foreldraorlof og lögum um greiðslur til foreldra langveikra eða alvarlega fatlaðra barna þrátt fyrir atvinnumissi. Ráðherra greindi frá þessu á ársfundi Vinnumálastofnunar á Nordica í dag um leið og hún hvatti fyrirtæki til að draga úr uppsögnum en lækka þess í stað starfshlutfall hjá fólki. Jóhanna hafði áður boðað tillögur sem þessar á ársfundi ASÍ fyrir viku.Búast má við að frumvarpið verði lagt fyrir Alþingi á næstu dögum og vonast ráðherra til að það fái skjóta afgreiðslu.
Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Sex svín drápust eftir annað innbrot Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent „Þetta er smjörklípa“ Innlent Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Innlent Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Innlent Fleiri fréttir Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Lægð nálgast og hviður geta orðið bílum skeinuhættar Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Tvær líkamsárásir í miðbæ í nótt Hálft ár fyrir ræktun á þriðja hundrað kannabisplantna Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Allir níu áfram í haldi Sjá meira