Innlent

Eldsneytið lækkar

Atlantsolía reið á vaðið með bensínlækkun í morgun og lækkaði það enn frekar þegar Bensínorkan lækkaði sitt verð í kjölfarið niður fyrir verð Atlantsolíu.

Atlantsolía lækkaði verð á bensínlítranum fyrst um tvær krónur snemma í morgun og verð á dísilolíu um eina krónu. Verð á bensínlítranum fór þá niður í rúmar 155 krónur úr rúmum 176 krónum eins og það var í upphafi mánaðarins. Það var lækkun um tuttugu og eina krónu á lítra.

Bensínorkan tilkynnti svo á tíunda tímanum um fjögurra króna bensínlækkun og fór þar með tvær krónur undir verðið hjá Atlantsolíu. Bensínorkan lækkaði dísilolíuna um tvær krónur og fór þar einnig niður fyrir Atlantsolíu en laust fyrir klukkan tíu lækkaði Atlantsolía enn og nú til jafns við Bensínorkuna. Þar með hefur bensínverðið hjá Atlantsolíu lækkað um 23 krónur í frá því sem það var í upphafi mánaðarins og lækkunin er álíka hjá Bensínorkunni.

Skeljungur og Olís lækkuðu svo bensínið um fjórar krónur og dísilolíuna um tvær krónur en N1 bilrtir ekki upplýsingar um verð á heimasíðu sinni.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×