Innlent

Botninn er dottinn úr síldar- og makrílveiðunum

Botninn er dottinn úr síldar- og makrílveiðunum og eru veiðiskipin nær öll á landleið.

Eftir árangurslausan leitarleiðangur nokkurra skipa norður undir Jan Mayen um helgina og trega veiði annarra skipa austur af landinu á meðan, fóru skipin að halda heimleiðis í gær og nótt.

Þrjú skip eru þó enn út í reginhafi í grennd við norsku lögsögulínuna. Sjómenn og útgerðarmenn ætla nú að endurmeta stöðuna, því vegna mikils olíukostnaðar er dýrt að halda skipum úti, ef ekki er á vísann að róa.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×