Innlent

Samningafundur hjá ljósmæðrum og ríkinu að hefjast

Samningafundur milli ljósmæðra og ríkisins hefst hjá ríkissáttasemjara klukkan tvö.

Takist ekki samningar um laun og kjör ljósmæðra hefjast boðaðar verkfallsaðgerðir á miðnætti á miðvikudaginn. Gert er ráð fyrir fjórum stigmagnandi verkföllum sem enda í allsherjarverkfalli 29. september ef ekki hefur samist fyrir þann tíma. Aðgerðirnar koma til með að skerða töluvert þjónustu á fæðingardeildum.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×