Sakfelldur fyrir mannrán og humarþjófnað 21. október 2008 15:01
Héraðsdómur Reykjaness hefur dæmt karlmann í fjögurra mánaða fangelsi fyrir ýmis brot, meðal annars fyrir mannrán. Maðurinn var ásamt félaga sínum ákærður fyrir að hafa svipt þriðja manninn frelsi sínu við Garðskagavita í febrúar í fyrra og fært hann nauðugan upp í bíl. Þaðan óku þeir í Sandgerði en á leiðinni sló hinn ákærði fórnarlambið ítrekað í andlit, bak og maga og sparkaði einnig í hann. Í kjölfarið neyddi hinn ákærði fórnarlambið til þess að fara í verslun Samkaupa/Úrval í bænum og taka þaðan út 50 þúsund krónur úr peningaskáp. Peningana hirti hinn ákærði. Hann var einnig ákærður fyrir þrjú þjófnaðarbrot, meðal annars fyrir að hafa í félagi við tvo menn brotist inn í tvö fyrirtæki og stolið þaðan tölvum. Enn fremur fyrir að hafa í félagi við annan mann stolið 170 kílóum af humri úr frystigámi í Reykjanesbæ, en verðmæti humarsins var 680 þúsund krónur. Enn fremur var maðurin ákærður fyrir að hafa í tvígang verði gripinn með fíkniefni í fórum sínum. Maðurinn á að baki sakaferil sem nær allt til ársins 1997. Hann hafði í fyrra verið dæmdur í 15 mánaða fangelsi fyrir ýmis brot en brotin sem hann var nú dæmdur fyrir áttu sér stað áður en dómurinn gekk. Því var manninnum dæmdur hegningarauki. Segir í dómnum að frelsisviptingin og líkamsárásin hafi verið mjög fólskuleg og að hann hafi stolið verulegum verðmætum. Hins vegar hafi lunginn af þeim komist til skila. Þá tók dómurinn tillit til þess að nokkuð langt hefði verið liðið frá því að ákærði framdi brotin. Þótti fjögurra mánaða dómur því hæfileg refsing.
Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent Sex svín drápust eftir annað innbrot Innlent „Þetta er smjörklípa“ Innlent Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Innlent Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Fleiri fréttir Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Lægð nálgast og hviður geta orðið bílum skeinuhættar Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Sjá meira