Afsagnahefð innan Framsóknarflokksins 17. nóvember 2008 19:45 Baldur Þórhallsson, prófessor í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands. ,,
Það að verða hefð innan Framsóknarflokksins að forystumenn hans fari frá með þessum hætti. Finnur Ingólfsson, Ingibjörg Pálmadóttir, Árni Magnússon, Halldór Ásgrímsson og Jón Sigurðsson fóru öll út úr stjórnmálum með skömmum fyrirvara," segir Baldur Þórhallsson, prófessor í stjórnamálfræði við Háskóla Íslands, um þá þá ákvörðun Guðna Ágústssonar að hætta sem formaður Framsóknarflokksins. Baldur segir sérstakt að formaður stjórnmálaflokks segi af sér þingmennsku um leið og hann láti af embætti formanns. Afsögn Guðna tengist miklum ágreiningi innan Framsóknarflokksins undanfarin ár, að mati Baldurs. Greinilegt sé að á miðstjórnarfundi um helgina hafi hart verið tekist á og forysta flokksins gagnrýnd. Augljóst sé að Guðni hafi tekið til sín því sem þar var sagt. Í framhaldi á afsögn Guðna telur Baldur enn líklegra en áður að Framsóknarflokkurinn samþykki stefnu á flokksþingi sínu í janúar sem miði að aðildarviðræðum við Evrópusambandið. Valgerður Sverrisdóttir, sem verið hefur varaformaður flokksins undanfarið ár, tekur við af Guðna sem formaður fram að flokksþingi eftir áramót þegar nýr formaður verður kjörinn. ,,Valgerður fær ákveðin tækifæri til að sanna sig og láta ljós sitt skína en jafnframt mun athygli og gagnrýni á hana aukast innan Framsóknarflokksins því hún var bankamálaráðherra þegar fjármálakerfið var byggt upp og hún tók þátt í því að einkavæða bankanna," segir Baldur.
Tengdar fréttir Guðni segir af sér þingmennsku og formennsku í Framsókn Guðni Ágústsson hefur sagt af sér þingmennsku. Þetta tilkynnti Sturla Böðvarsson, forseti Alþingis, við upphaf þingfundar og vísaði til bréfs sem Guðni sendi þinginu. 17. nóvember 2008 15:06 Atvinnumálin mikilvægust segir nýr þingmaður Framsóknarflokksins Eygló Harðardóttir, fyrsti varaþingmaður Framsóknarflokksins í Suðurkjördæmi, hyggst taka sæti á Alþingi í stað Guðna Ágústssonar sem sagði af sér þingmennsku og formennsku í Framsóknarflokknum í dag. ,,Staðan er þannig í þjóðfélaginu að enginn getur skorast undan ábyrgð." 17. nóvember 2008 19:35 Guðni hefði átt að finna nýja foringja Steingrímur Hermannsson fyrrverandi forsætisráðherra og formaður Framsóknarflokksins segist hafa áhyggjur af flokknum. Hann segir það þó ekki hafa komið sér á óvart að Guðni Ágústsson hafi sagt af sér formennsku í Framsóknarflokknum í dag. 17. nóvember 2008 16:55 Guðni lækkar í launum þegar hann fer á eftirlaun Í frétt Vísis í dag og á Stöð 2 í kvöld var því haldið fram að Guðni Ágústsson, fráfarandi formaður Framsóknarflokksins og fyrrveradni þingmaður, fengi hærri laun á eftirlaunum á næsta ári heldur en hann þiggur í dag. Það er rangt og biður Vísir Guðna afsökunar á því. 17. nóvember 2008 19:27 Eiginkonan: Guðni veitir ekki viðtöl - á leið til útlanda í frí Guðni Ágústsson, formaður Framsóknarflokksins sem sagði af sér þingmennsku í dag, veitir ekki viðtöl í dag eða næstu daga. Þetta sagði Margrét Hauksdóttir, eiginkona hans, í samtali við Vísi. 17. nóvember 2008 15:24 Segir hóp á vegum Valgerðar hafa gert aðför að Guðna Bjarni Harðarson fyrrverandi þingmaður Framsóknarflokksins segir afsögn formannsins vera afar slæm tíðindi fyrir flokkinn. Guðni Ágústsson sagði af sér þingmennsku í dag og lét einnig af störfum sem formaður flokksins. Bjarni vissi af ákvörðun Guðna fyrir um hálfum sólarhring og segist styðja hann heilshugar rétt eins og Guðni gerði í síðustu viku, þegar Bjarni sagði af sér þingmennsku. 17. nóvember 2008 15:37 Sleginn yfir ákvörðun Guðna - Formannsframboð ekki á dagskrá ,,Það er ekki á dagskrá hjá mér að bjóða mig fram til formanns. Auðvitað er maður hálf sleginn yfir þessum atburðum og er ég er að reyna að átta mig á breyttri stöðu," sagði Siv Friðleifsdóttir í samtali við Vísi. 17. nóvember 2008 18:33 Páll íhugar formannsframboð í Framsókn Páll Magnússon, bæjarritari í Kópavogi, íhugar nú hvort hann muni gefa kost á sér til formanns Framsóknarflokksins á flokksþingi sem haldið verður í janúar á næsta ári. Ef af verður gæti hann hugsanlega att kappi við fyrrverandi ráðherra sem hann aðstoðaði um tíma. 17. nóvember 2008 11:35 Mest lesið Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum Innlent Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Erlent Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Innlent Hálft ár fyrir ræktun á þriðja hundrað kannabisplantna Innlent Minningarstundir vegna andlátanna Innlent Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Innlent „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Innlent Fleiri fréttir Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Tvær líkamsárásir í miðbæ í nótt Hálft ár fyrir ræktun á þriðja hundrað kannabisplantna Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Allir níu áfram í haldi Mátti ekki gefa blóð í gær en gerði það í dag Staðan hafi ekki verið betri á þessari öld Halla verður viðstödd útför Haraldar Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Viðreisn tapar fylgi Sigríður Þorvaldsdóttir látin Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Minningarstundir vegna andlátanna Þorgerður sinnir starfi sveitarstjóra í eitt ár Andarnefja í andarslitrunum á Djúpavogi Báðar fylkingar eyddu milljónum í samfélagsmiðlaauglýsingar Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Byrjað að leggja Borgarlínu við Nauthólsveg Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Komugjald lagt á: „Þetta er auðvitað ekkert annað en skattlagning“ SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Norðausturland fær loks langþráðan veg Tjón vegna skemmdarverka hlaupi á milljónum Rætt við vitni að banaslysinu og eldri borgarar ósáttir með skattahækkun Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Rún frá Veitum til Þorgerðar Katrínar Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Sjá meira
Guðni segir af sér þingmennsku og formennsku í Framsókn Guðni Ágústsson hefur sagt af sér þingmennsku. Þetta tilkynnti Sturla Böðvarsson, forseti Alþingis, við upphaf þingfundar og vísaði til bréfs sem Guðni sendi þinginu. 17. nóvember 2008 15:06
Atvinnumálin mikilvægust segir nýr þingmaður Framsóknarflokksins Eygló Harðardóttir, fyrsti varaþingmaður Framsóknarflokksins í Suðurkjördæmi, hyggst taka sæti á Alþingi í stað Guðna Ágústssonar sem sagði af sér þingmennsku og formennsku í Framsóknarflokknum í dag. ,,Staðan er þannig í þjóðfélaginu að enginn getur skorast undan ábyrgð." 17. nóvember 2008 19:35
Guðni hefði átt að finna nýja foringja Steingrímur Hermannsson fyrrverandi forsætisráðherra og formaður Framsóknarflokksins segist hafa áhyggjur af flokknum. Hann segir það þó ekki hafa komið sér á óvart að Guðni Ágústsson hafi sagt af sér formennsku í Framsóknarflokknum í dag. 17. nóvember 2008 16:55
Guðni lækkar í launum þegar hann fer á eftirlaun Í frétt Vísis í dag og á Stöð 2 í kvöld var því haldið fram að Guðni Ágústsson, fráfarandi formaður Framsóknarflokksins og fyrrveradni þingmaður, fengi hærri laun á eftirlaunum á næsta ári heldur en hann þiggur í dag. Það er rangt og biður Vísir Guðna afsökunar á því. 17. nóvember 2008 19:27
Eiginkonan: Guðni veitir ekki viðtöl - á leið til útlanda í frí Guðni Ágústsson, formaður Framsóknarflokksins sem sagði af sér þingmennsku í dag, veitir ekki viðtöl í dag eða næstu daga. Þetta sagði Margrét Hauksdóttir, eiginkona hans, í samtali við Vísi. 17. nóvember 2008 15:24
Segir hóp á vegum Valgerðar hafa gert aðför að Guðna Bjarni Harðarson fyrrverandi þingmaður Framsóknarflokksins segir afsögn formannsins vera afar slæm tíðindi fyrir flokkinn. Guðni Ágústsson sagði af sér þingmennsku í dag og lét einnig af störfum sem formaður flokksins. Bjarni vissi af ákvörðun Guðna fyrir um hálfum sólarhring og segist styðja hann heilshugar rétt eins og Guðni gerði í síðustu viku, þegar Bjarni sagði af sér þingmennsku. 17. nóvember 2008 15:37
Sleginn yfir ákvörðun Guðna - Formannsframboð ekki á dagskrá ,,Það er ekki á dagskrá hjá mér að bjóða mig fram til formanns. Auðvitað er maður hálf sleginn yfir þessum atburðum og er ég er að reyna að átta mig á breyttri stöðu," sagði Siv Friðleifsdóttir í samtali við Vísi. 17. nóvember 2008 18:33
Páll íhugar formannsframboð í Framsókn Páll Magnússon, bæjarritari í Kópavogi, íhugar nú hvort hann muni gefa kost á sér til formanns Framsóknarflokksins á flokksþingi sem haldið verður í janúar á næsta ári. Ef af verður gæti hann hugsanlega att kappi við fyrrverandi ráðherra sem hann aðstoðaði um tíma. 17. nóvember 2008 11:35