Dollarayfirlýsing forsætisráðherra kostuleg 26. júní 2008 12:31
Geir Haarde forsætisráðherra útilokar ekki að taka upp bandaríkjadal á Íslandi. Hann sagði þetta í viðtali við erlenda fréttaveitu í gær. Guðmundur Gunnarsson, formaður Rafiðnaðarsambands Íslands, segir þetta kostulega yfirlýsingu frá forsætisráðherra. Það er í viðtali við Dow Jones fréttaveituna sem forsætisráðherra segir að hann vonist til að hægt verði að forðast að tengja íslensku krónuna við annan gjaldmiðil eða taka upp aðra mynt. Ef til þess kæmi myndi hann ekki útiloka möguleikann á að taka upp bandaríkjadal. Þetta kom fram á visi.is í gær. Þar segir einnig frá því að Geir hafi á málþingi fjárfesta í Lundúnum í vikunni sagt að mikil viðskipti Íslendinga færu nú þegar fram í bandaríkjadölum. Upptaka dalsins væri því rökréttari lausn en innganga í myntbandalag Evrópu sem svo myndi leiða til evruvæðingar. Evran væri þannig ekki sjálfgefin mynt að mati Geirs. Formaður Rafiðnaðarsambandsins, Guðmundur Gunnarsson, segir í nýjustu færslu á bloggi sínu að yfirlýsing forsætisráðherra sé kostuleg. Hann spyr hvort hér sé maður sem þori ekki að leggja í ákvarðanir fyrri formanns. Eins og staðan sé nú þá virðist það eina, segir Guðmundur, sem vaki fyrir mönnum að halda í fyrri stjórnarhætti og valdastöðu í íslensku samfélagi. Hagsmunir almennings og fyrirtækja skipti þá minna máli. Á sama tíma gefi sífellt fleiri fyrirtæki og samtök út yfirlýsingar um að sú peningastefna hér sé fylgt gangi ekki. Þá telur Guðmundur að undirbúningi aðildar að ESB verði ekki lengur skotið á frest.
Mest lesið Fegursta flugvél Íslands rifin Innlent Óttast að yfir áttatíu hafi farist Erlent Túlkunaratriði hvað eigi að gera við umsóknina Innlent Segir Repúblikönum að tala meira um afrek hans Erlent „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Innlent Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Ásakanir á víxl milli leyniþjónusta eftir skothríð í Kænugarði Erlent „Ekkert af þessu er beinlínis að hjálpa okkur“ Innlent Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Innlent Ruddist inn í íbúð og reyndi að komast inn á upptekið baðherbergið Innlent Fleiri fréttir Túlkunaratriði hvað eigi að gera við umsóknina Ruddist inn í íbúð og reyndi að komast inn á upptekið baðherbergið Fegursta flugvél Íslands rifin „Ekkert af þessu er beinlínis að hjálpa okkur“ „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Slaka á kröfum um íbúðastærðir og verslunarrými á jarðhæð Með umtöluð símtöl og skilaboð á sínu borði Kalla eftir ákvörðun um milljarðaáform í Skálafelli Búið að opna fyrir umferð að nýju eftir bilunina Tímamót hjá Kvennaathvarfinu Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Sérstakt viðbragð á Ljósanótt vegna unglingadrykkju Hámark bílastæða við nýbyggingar falli niður Óvirk umferðarljós valda töfum Skuld fyrri eiganda stöðvi ekki skoðun bíls Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Pallborðið: Línurnar lagðar fyrir spennandi þing Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Þorgerður kallaði Rússa á teppið og auknar heimildir lögreglu Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Víðáttumikil lægð fyrir sunnan land Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Þjófnaður í þremur verslunum Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Sjá meira