Innlent

Frjálslyndir vilja faglegan Seðlabankastjóra

Frjálslyndi flokkurinn ætlar að leggja fram frumvarp til breytingar á lögum um Seðlabankann, þar sem miðað er við að bankastjóri verði valinn á grundvelli faglegra hæfileika.

Aðeins einn bankastjóri verði yfir bankanum og skipt verði um núverandi bankastjóra og bankaráð Seðlabankans.

Flokkurinn ætlar einnig að leggja fram þingályktunartillögu um innköllun fiskveiðiréttinda.

Tillögurnar verða kynntar nánar síðdegis í dag.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×