Innlent

Búið að opna skíðasvæði Tindastóls

Skíðasvæði Tindastóls
Skíðasvæði Tindastóls

Þrátt fyrir að í byggð sé suðvestan rok er blíða upp á skíðasvæði Tindastóls en svæðið var opnað fyrr í dag. Færið er að sögn forstöðumanns æðislegt og veðrið suðvestan átta og hiti 3 gráður.

Eitthvað af fólki er þegar komið í brekkurnar og segir Viggó Jónsson forstöðumaður að ekki þurfi að örvænta þó hláni því nægur snjór sé á skíðasvæðinu.

Nú er bara að vaxa skíðin og skella sér í stólinn.

Þetta kemur fram á fréttavefnum http://www.feykir.is/

 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×