Skólameistari hvetur kennara til varkárni í kreppuumræðu Atli Steinn Guðmundsson skrifar 30. október 2008 14:27 Einar Birgir Steinþórsson. MYND/Flensborg
Skólameistari Flensborgarskólans í Hafnarfirði sendi kennurum og öðru starfsfólki skólans bréf í byrjun október og hvatti þar til þess að stigið yrði varlega til jarðar í öllum umræðum um efnahagsástandið á Íslandi í kennslustundum. „Ég bað menn nú bara að vera vakandi yfir því að gæta að öllu gáleysislegu tali vegna þess að fólk er misjafnt. Hér eru 900 nemendur og starfsmenn," segir Einar Birgir Steinþórsson skólameistari. Hann segir enga leið að vita fyrir fram hvernig hlutirnir snerti hvern og einn og það geti varla talist æskilegt að hleypa af stað umræðu um einstaka menn í þjóðfélaginu eða viðkvæm málefni á vinnustað sem tæplega þúsund manneskjur með tengingar í allar hugsanlegar áttir sæki. Einar segist ekkert vita um hvort aðrir skólastjórnendur, hvort sem væri á framhaldsskóla- eða öðrum skólastigum, hefðu gefið út svipuð tilmæli. „Það er ekki verið að banna neina umræðu í skólanum, langt í frá," segir hann og ítrekar að hann hafi bara talið æskilegt að gæta fullrar varkárni. Tengir umræðu við Íslandsklukkuna Freyja Auðunsdóttir, íslenskukennari við Flensborg, segir að í umræddu bréfi hafi verið rætt um þá óvissutíma sem nú ríktu í þjóðfélaginu. Komin væri upp staða sem kennararnir þekktu ekki og nemendurnir þá enn síður. Væru kennarar því beðnir að fara mjög varlega í öllum umræðum um efnahagsmál og varast að hleypa umræðunni af stað, ekki síst þegar kæmi að því að ræða um hugsanlega sökudólga. Orðin „aðgát skal höfð í nærveru sálar" ættu betur við nú en nokkru sinni. „Ég ákvað að taka þann pólinn í hæðina að fara varlega í allar umræður og helst að tala ekki um neina ákveðna aðila heldur ræða ástandið almennt," segir Freyja. Hún kennir meðal annars Íslandsklukkuna eftir Halldór Kiljan Laxness og segist ekki hika við að nota dæmi úr bókinni til að skoða atburði líðandi stundar og bera þá saman við íslenskt þjóðfélag á sögutíma Íslandsklukkunnar en bókin lýsir íslensku samfélagi undir lok 17. aldar og í byrjun þeirrar 18. „Bókin byrjar líka á þeim nótum að verið er að ræða um sameign íslensku þjóðarinnar og hver hún sé og ég stoppa nemendur auðvitað ekkert af þegar þeir fara að ræða atburðina núna með hliðsjón af sögunni," segir Freyja enn fremur. „Maður hugsar sig líka tvisvar um áður en maður segir einhverja brandara sem maður hefur heyrt og svo framvegis. Annars var mun meira um að efnahagsmál væru rædd í kennslustundum fyrstu dagana eftir að þetta skall allt saman á í kringum síðustu mánaðamót," segir hún að lokum.
Mest lesið Magnús Eiríksson borinn til grafar Innlent Trump fer mikinn á Truth Social og virðist ætla sér Kanada Erlent Hafi nauðgað sex ára stúlku og eiginkonu sinni og birt af því myndir Innlent „Ekki gott að fólk sé endalaust að sulla svona í víni“ Innlent Fyrsta árinu af fjórum lokið Erlent Rauð norðurljós vegna kórónugoss Innlent Heitt í hamsi vegna Grænlands Innlent Hrókering hjá Helga og Miðflokknum vex Áss megin Innlent „Kanntu ekki mannasiði mannfjandi?“ Innlent Skutu flugskeytum fyrir tólf milljarða á einni nóttu Erlent Fleiri fréttir „Kanntu ekki mannasiði mannfjandi?“ Brynjar skýtur föstum skotum á Flokk fólksins „Fyrsta ár ríkisstjórnarinnar hefur mistekist“ Magnús Eiríksson borinn til grafar Heitt í hamsi vegna Grænlands Hafi nauðgað sex ára stúlku og eiginkonu sinni og birt af því myndir Dýr framtíðarlausn að færa þjóðveginn vegna grjóthruns Borgarstjórn biður vöggustofubörnin afsökunar Eldgos á næstu vikum enn líklegasta niðurstaðan Sjö tilkynningar um heimilisofbeldi að jafnaði á dag „Ekki gott að fólk sé endalaust að sulla svona í víni“ Styrkleiki að formaður Framsóknar eigi sæti á þingi Þrjátíu á slysadeild vegna hálku og sjúkrabílar á leiðinni með fleiri Mannréttindaráðið ræðir Íran að frumkvæði Íslands Fimm starfslokasamningar kostað Hafró 35 milljónir Ögranir Trumps halda áfram og tugir leituðu á bráðamóttöku í hálkunni Á þriðja tug á bráðamóttöku vegna hálkuslysa Ingibjörg býður sig fram í formanninn Þrír fullir Íslendingar lausir úr haldi Hrókering hjá Helga og Miðflokknum vex Áss megin Sandra tekin við af Guðbrandi Flughált í höfuðborginni og víðar um land Lamdi konu stuttu eftir að hann var stunginn Sænski herinn með viðbúnað á Íslandi Loðnuvertíð hafin og floti farinn til loðnumælinga Deilt um verðhækkanir Veitna Veita hjúkrunarheimilum ráðgjöf vikulega vegna drykkju eldri borgara Ráðherra hafi gefið veiðileyfi á sig Rauð norðurljós vegna kórónugoss Hljóp á sig Sjá meira