OR-maður: „Get sjálfum mér um kennt“ 16. desember 2008 09:50 Hús Orkuveitu Reykjavíkur
Kristinn H. Þorsteinsson yfirmaður hjá Orkuveitunni sendi frá sér yfirlýsingu í gærkvöldi vegna fréttar Stöðvar 2 og Rúv. Þar var rætt um starfslok Kristinns eftir að hann hafði sjálfur samþykkt reikninga, upp á 10 milljónir króna, við fyrirtæki sem hann var sjálfur í forsvari fyrir. „Í fréttum þessara miðla er réttilega frá sagt að ég hafi samþykkt reikninga sem einkahlutafélag í eigu minni fékk greidda af Orkuveitu Reykjavíkur. Reikningarnir voru til komnir vegna vinnu tveggja sona minna sem unnið hafa íhlaupavinnu hjá Orkuveitunni undanfarin ár og vegna vinnu eiginkonu minnar sem unnið hefur sem verktaki af og til undanfarin ár í þeirri deild sem ég stjórnaði. Einnig fékk ég bróður minn til þess að vinna einstök verkefni fyrir deildina og skrifaði upp á reikninga vegna þeirrar vinnu,“ segir Kristinn í yfirlýsingunni. Þá segir hann að í öllum tilvikum hafi verið um að ræða eðlilega greiðslu fyrir þau störf sem unnin voru. Vinna konu hans, sona og bróðurs hafi verið unnin fyrir opnum tjöldum, á fjölmennum vinnustað og á engan hátt var farið í felur með tengsl þeirra innbyrðis. „Öllum sem vita máttu voru tengslin ljós og aldrei einu eða neinu haldið leyndu. Það breytir þó ekki því að með því að samþykkja reikninga vegna vinnu þeirra braut ég verklagsreglur Orkuveitu Reykjavíkur. Mér er ljóst að sú háttsemi sem hér er lýst lítur illa út í fjölmiðlum og eflaust halda margir að ég hafi verið að draga mér fé með svikum og prettum. Staðreyndin er eigi að síður að sú vinna sem rukkað var fyrir af eiginkonu minni, sonum og bróður var unnin í samræmi við það sem rétt og eðlilegt getur talist og einnig var fjárhæð reikninga í samræmi við það sem sanngjarnt er. Yfirstandandi endurskoðun mun leiða það í ljós. Ég veit að sú endurskoðun mun sýna fram á að ég hef ekki framið neitt það sem refsivert getur talist. Ég get engun nema sjálfum mér um kennt hvernig farið hefur, en ítreka að ég hef á engan hátt skarað eld að eigin köku. Ég hef hins vegar nýtt starfskrafta konu minnar, sona og bróðurs í þágu Orkuveitunnar. Mistök mín voru í því fólgin að fara ekki að reglum sem segja fyrir um að maður skuli ekki sjálfur skrifa upp á reikninga síns fólks. Þetta er óafsakanleg yfirsjón sem ég harma mjög, enda hef ég unnið af heilindum fyrir fyrirtækið frá stofnun þess og fyrir Rafmagnsveitu Reykjavíkur næsta áratuginn þar á undan. Það er óskaplegt að verða þetta á eftir nær 20 ár í starfi hjá þessu góða fyrirtæki. Ég get þó engum nema sjálfum mér um kennt hvernig komið er. Ég óska fyrrverandi samstarfsfólki mínu alls hins besta og gleðilegra jóla á þessum erfiðu tímum," segir í yfirlýsingunni.
Mest lesið Önnur stúlka með móður sinni þegar Högni var klófestur Fréttir Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut og tveir fluttir á slysadeild Innlent Borgarstjóri fór með rangt mál Innlent Umfangsmikil lögregluaðgerð við Glerárgötu á Akureyri Innlent Eigum eftir að sjá hvort Guðbrandur bæti upp fyrir hegðun sína Innlent Krafa um að Margrét Löf verði gerð arflaus fer fyrir Landsrétt Innlent Hófu niðurrif á félagsheimilinu í leyfisleysi: „Skaðinn er skeður“ Innlent Öryrkjar eru með hærri laun en eldri borgarar Innlent „Hef hvergi hallað réttu máli“ Innlent Fá þau að vera aftur á lista með Hildi? Innlent Fleiri fréttir „Hef hvergi hallað réttu máli“ Fá þau að vera aftur á lista með Hildi? Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut og tveir fluttir á slysadeild Eigum eftir að sjá hvort Guðbrandur bæti upp fyrir hegðun sína Umfangsmikil lögregluaðgerð við Glerárgötu á Akureyri Öryrkjar eru með hærri laun en eldri borgarar Borgarstjóri fór með rangt mál Gagnrýnin hugsun skipti máli Krafa um að Margrét Löf verði gerð arflaus fer fyrir Landsrétt Hófu niðurrif á félagsheimilinu í leyfisleysi: „Skaðinn er skeður“ Fjórir slást um oddvitasæti Viðreisnar Afsögn þingmanns, hótanir Trumps og í beinni frá Svíþjóð Mun hærri dánartíðni og meiri örorka hjá fyrrum vöggustofubörnum „Í mínum huga eru þetta klárar ærumeiðingar“ Vilja Laugardalshöll líkt og þeim var lofað Kviknaði í Svarta sauðnum í Þorlákshöfn Taldi ekki sérstaka nauðsyn á að hneppa Helga Bjart í varðhald Barbara sakar Sigríði um einelti og Valtý um gagnaleka „Vonbrigði“ Vill „nánast loka alfarið“ á útlendinga utan Evrópu Mjög óalgengt að þingmenn segi af sér Mikilvægt að vanda sig og beita varúð Telur Pétur hafa svarað ágætlega fyrir lóðaviðskipti Sjaldgæf afsögn þingmanns og leikskóla lokað að óbreyttu Eftirmaður Guðbrands í sjokki en klár í slaginn „Lauslát mella“ hafi verið mildasta lýsingin á dómaranum Einn af hverjum fjórum stjórnendum notar gervigreind daglega Telur viðbrögð Guðbrands rétt og skynsamleg Bærinn fær 70 milljónir fyrir gamla Landbankahúsið sem fær nýtt hlutverk Kolbeinn Tumi tekur við af Erlu Björgu Sjá meira