Innlent

Velta hestamennsku 14 milljarðar

MYND/Úr einkasafni

Talið er að árleg velta í hestamennsku á Íslandi nemi nú um 14 milljörðum króna. Þetta kemur fram í viðtali Fréttablaðsins við Harald Þórarinsson formann Landssambands hestamanna í dag.

Útflutningur hesta einn og sér gefur af sér um 600 milljónir króna á ári en um 1.500 hestar eru nú fluttir utan á hverju ári. Hestaverðið rokkar frá nokkur hundruðum þúsunda og upp í tugi milljóna. Dæmi eru um að stóðhestar hafi verið seldir á allt að 50 milljónir króna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×