Innlent

Sauðaþjófnaðarmálinu á Höfn lokið

Breki Logason skrifar

Rannsókn á svokölluðu sauðaþjófnaðarmáli á Höfn sem lögreglustjórinn á Eskifirði fór með er lokið. Ákveðið var að fella málið niður þar sem sönnunargöngin í málinu þóttu ekki nægjanleg til sakfellingar.

Málið kom upp síðasta haust þegar fjórir lögreglumenn og fimm bændur úr Nesjum við Höfn í Hornafirði, gerðu fjárhúsleit í fjárhúsum bónda þar á svæðinu. Var bóndinn grunaður um stórfelldan sauðaþjófnað. Vildu bændurnir meina að hann hafi breytt mörkum og merkjum á lömbum og lagt þú í sláturhúsið sem sín eigin.

Í kjölfarið voru eyru og hausar af um þrjátíu lömbum, sem bóndinn hafði lagt inn til slátrunar, send til rannsóknarstofnun landbúnaðarins á Keldum til rannsóknar.

Nú er málinu semsagt lokið af hálfu lögreglustjórans á Eskifirði en ákvröðun hans er kæranleg til ríkissaksóknara innan mánaðar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×