Innlent

Hanna Birna: Tíminn vinnur með okkur

Hanna Birna hefur töluvert fylgi umfram það sem forveri hennar hafði.
Hanna Birna hefur töluvert fylgi umfram það sem forveri hennar hafði.
„Þetta er allt á réttri leið og augljóst að tíminn vinnur með okkur. Ég átti alltaf von á því að það tæki tíma að vinna fylgið aftur," segir Hanna Birna Kristjánsdóttir um nýja skoðanakönnun á fylgi við meirihluta Sjálfstæðisflokks og framsóknarmanna í borgarstjórn.

Samkvæmt nýjum Þjóðarpúlsi Gallup eru 56% borgarbúa andvígir nýjum meirihluta í borginni. Þetta eru töluvert skaplegri tölur fyrir nýja meirihlutann en sést hafa í könnunum hingað til. Í könnun Capacent sem Stöð 2 birti þann 25. ágúst voru um 63% andvígir meirihlutanum. I könnun sem Fréttablaðið birti þann 17 ágúst síðastliðinn voru 73,8% andvíg meirihlutanum.

Hanna Birna segist vera þakklát fyrir það persónulega fylgi sem hún hafi fengið en 40% þeirra sem svöruðu sögðust vera ánægðir með Hönnu Birnu í embætti borgarstjóra. Þriðjungur sagðist vera óánægður með hana en þriðjungur sagðist hvorki vera ánægður né óánægður með hana. Fylgið við Hönnu Birnu er töluvert umfram það sem forveri hennar hafði.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×