Innlent

Greiddi sekt á lögreglustöðinni með stolnu korti

Karlmanni sem stal greiðslukorti tókst að svíkja út tæplega 340 þúsund krónur í verslunum á einum og hálfum sólarhring. Hann notaði kortið meðal annars til að greiða sekt á lögreglustöðinni í Reykjavík.

Sagt er frá þessu í fréttaskýringarþættinum Kompási sem sýndur verður í kvöld. Kreditkorti mannsins var stolið um helgi og áttaði hann sig ekki á því fyrr en einum og hálfum sólarhring síðar. Maðurinn kannst við þann sem rændi kortinu og fullyrðir hann að þeir séu ólíkir í útliti. Hann er því nokkur ósáttur við þá sem afgreiddu þjófinn þegar hann notaði kortið. Alls tókst þjófnum að eyða tæpum 340 þúsund krónum. Þar af sveik hann út um 130 þúsund krónur af bensín stöð N1 í tveimur færslum. Hann greiddi líka sekt á lögreglustöðinni í Reykjavík með kortinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×