Innlent

Dæmdur fyrir að sparka í höfuð manns

Úr myndasafni.
Úr myndasafni. MYND/Stefán

Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í dag karlmann í tveggja mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir að hafa sparkað í höfuðið á öðrum manni við útitaflið í miðbænum. Hlaut fórnarlambið blóðnasir, rispur og bólgur í andliti.

Árásin átti sér stað að morgni þjóðhátíðardagsins 17. júní í fyrra. Samkvæmt dómnum hafði mönnum lent saman Hafnarstræti en lögregla stöðvaði þau slagsmál. Skömmu síðar bar fundum þeirra aftur saman við útitaflið við Lækjarbrekku.

Árásarmaðurinn neitaði sök og sagði fórnarlambið og félaga þess hafa ráðist á sig að fyrra bragði. Fórnarlambið og vinur þess sögðu hins vegar að ákærði hefði komið aftan að þeim og sparkað í höfuð fórnarlambsins.

Taldi dómurinn út frá framburði fórnarlambsins og vitna að sakfella bæri manninn fyrir árásina. Segir dómurinn árásina fólskulega og að mjög alvarlegir áverkar hefðu getað hlotist af henni. Þó verði að líta ákærða til málsbóta að tiltölulega litlir áverkar hlutust af árás hans.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×