Boruðu dýpstu holu landsins 13. maí 2008 14:02 MYND/Orkuveita Reykjavíkur
Menn á vegum Jarðborana slógu á dögunum aðeins þriggja mánaða gamalt met við borun á Skarðsmýrarfjalli á Hellisheiði. Holan sem boruð var reyndist 3.322 metrar og var þar með 211 metrum dýpri en fyrri methola sem lokið var við í febrúar.Fram kemur í tilkynningu frá Orkuveitu Reykjavíkur að gufu úr holunni verði veitt í gufuhverfla sem teknir verða í notkun í Hellisheiðarvirkjun í haust. Bent er á að hin nýja methola sé ekki stefnuboruð líkt og flestar holur á Hengilssvæðinu og nær því alla sína 3.322 metra niður fyrir yfirborðið. Það var áhöfnin á jarðbornum Geysi frá Jarðborunum sem boraði á þetta metdýpi og tók borunin rúmar fimm vikur.„Nú er verið að afla upplýsinga úr holunni djúpu sem geta gefið betri vísendingar en hingað til hefur verið stuðst við um afkastagetu jarðhitakerfisins á Hengilssvæðinu. Því dýpra sem rannsóknargögn eru sótt, því líklegra er að mat á umfangi auðlindarinnar vaxi. Vísindamenn reikna einungis með varmanum niður á það dýpi sem rannsóknir ná til þegar umfang auðlindarinnar er metið og þar með sjálfbærni nýtingarinnar," segir einnig í tilkynningunni. Enn fremur er bent á að rannsóknarniðurstöður úr holunni geti gefið gagnlegar vísbendingar fyrir djúpborunarverkefnið sem Orkuveita Reykjavíkur á aðild að og nú stendur yfir.
Mest lesið Fólki ráðlagt að fylgjast vel með veðurspám Veður Nauðgaði konu sem hann hitti í körfubolta skömmu áður Innlent „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Innlent Sýknaður af nauðgun þótt konan þætti trúverðug Innlent Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum Innlent Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Innlent Trump vill ekki flýta sér Erlent Arftaki 757 aftur á teikniborði Boeing Erlent Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Innlent „Ekki í lífshættu“ Innlent Fleiri fréttir Nauðgaði konu sem hann hitti í körfubolta skömmu áður Jarðskjálfti við Bárðarbungu í nótt „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Sýknaður af nauðgun þótt konan þætti trúverðug Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum „Ekki í lífshættu“ Flugáætlun Icelandair hafi fallið á álagsprófi Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Sérsveitin bregst við „alvarlegu atviki“ á Kársnesi „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ „Hvað hafa þau að fela?“ Enn öðru flugi aflýst Lögregluaðgerð á Laugavegi Sprengisandur: Páll stýrir þéttpökkuðum þætti Skjálftahrina úti af Reykjanesi Maðurinn er fundinn „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Sérsveitarmenn flugu til Ísafjarðar vegna vopnaðs manns „Einhvers konar toppur á ísjakanum“ Tvö mál ráði úrslitum Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Almennur borgari veitti bílnum eftirför Sjá meira