Innlent

Sprengja fannst á svæði Hringrásar í Helguvík

Sprengjan fannst á svæði Hringrásar í Helguvík.
Sprengjan fannst á svæði Hringrásar í Helguvík. MYND/Oddgeir Karlsson

Um miðjan dag í dag fundu starfsmenn Hringrásar í Helguvík sprengjuvörpusprengu innan um járnaúrgang. Í tilkynningu frá lögreglunni á Suðurnesjum kemur fram að hún hafi lokað staðnum af þar til starfsmenn sprengjudeildar Landhelgisgæslunnar komu og fjarlægðu sprengjuna til eyðingar.

Sprengjan var ekki virk, þar sem sjálfa sprengjuhleðsluna vantaði.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×